top of page

tegundir mígrenis

Þegar við heyrum talað um mígreni er yfirleitt verið að tala um mígreni með áru eða mígreni án áru enda eru þær tegundir algengasta birtingamynd mígrenis.

 

Margir vita ekki að til eru mun fleiri sjaldgæfari tegundir sem lýsa sér á mjög mismunandi hátt. 

pexels-ivan-s-6788688 Large_edited.jpg

MÍGRENI
MEÐ OG ÁN ÁRU

pexels-cottonbro-7243778 Large.jpeg

                                                   eru endurtekin köst sem geta varað frá 4 klukkustundum upp í 72 klukkustundir. Höfuðverkurinn getur verið miðlungs eða mikill og er oft öðrum megin í höfðinu. Önnur einkenni sem fylgja eru til dæmis ógleði og/eða uppköst, viðkvæmni fyrir hljóði, ljós og lykt. 

​

                                                         er svipað og án áru nema þá bætast við tímabundin einkenni sem koma á undan höfuðverknum, einskonar fyrirboði fyrir það sem koma skal. Þessi einkenni geta til dæmis verið sjóntruflanir (blikkandi ljós, svartir deplar, mynstur eða óskýrt sjónsvið), náladofi, erfiðleikar við að tala og/eða finna réttu orðin og tímabundnar truflanir á hreyfingu. Áran gengur oftast yfir innan klukkustundar. Að henni lokinni getur komið höfuðverkur ásamt öðrum dæmigerðum mígreniseinkennum.

​Mígreni án áru

​Mígreni með áru

Lotubundið mígreni
vs. krónískt mígreni

Mígreni getur verið mismunandi eftir því hversu oft köstin koma. Yfirleitt er talað um lotubundið mígreni eða krónískt mígreni.

​

Við lotubundið mígreni eru höfuðverkja dagar færri en 15 á mánuði. Tíðni kastanna getur þó verið mjög mismunandi milli einstaklinga. Sumir fá mígrenikast aðeins einu sinni á ári á meðan aðrir geta fengið mörg köst í mánuði.

​

Mígreni telst krónískt þegar einstaklingur er með höfuðverk 15 daga eða fleiri í mánuði í meira en þrjá mánuði og mígreniseinkenni eru til staðar að minnsta kosti á átta þessara daga.

​

Tíðni mígrenikasta getur breyst með tímanum. Þættir eins og streita, svefn, hormónabreytingar, lyf og ýmislegt annað geta haft áhrif á hversu oft köstin koma.

bottom of page