
Hvað er mígreni?

Mígreni er langvinnur taugasjúkdómur sem einkennist af endurteknum köstum og getur haft áhrif á mun meira en höfuðið eitt. Höfuðverkur er algengt einkenni mígrenis, en sjúkdómurinn getur einnig valdið ógleði, ljós- og hljóðnæmi, sjóntruflunum, svima, þreytu, einbeitingarerfiðleikum og ýmsum öðrum einkennum.
Mígreni er því ekki „bara höfuðverkur“.
Mígreni getur haft veruleg áhrif á daglegt líf, vinnu, nám, fjölskyldulíf og félagslega þátttöku. Á milli kasta geta sumir verið einkennalausir en aðrir finna áfram fyrir einkennum eða óvissu um hvenær næsta kast hefst.
Mígreni er ósýnilegur sjúkdómur
Eitt af því sem getur gert mígreni sérstaklega erfitt er að sjúkdómurinn sést yfirleitt ekki utan á fólki. Mígreni er því einn þeirra ósýnilegu sjúkdóma sem geta mætt þekkingar- og skilningsleysi í samfélaginu.
Einstaklingur getur litið fullkomlega heilbrigður út en á sama tíma verið með mikinn verk, ógleði, sjóntruflanir, svima eða slíkt næmi fyrir ljósi, hljóði eða lykt að erfitt sé að vera innan um annað fólk.
Fólk með mígreni þarf skilning, þekkingu og samfélag sem tekur sjúkdóminn alvarlega. Mígreni er ekki bara höfuðverkur sem hverfur ef viðkomandi drekkur meira vatn, tekur verkjatöflu eða fer í göngutúr.
Með réttri greiningu, viðeigandi meðferð, fræðslu og stuðningi er oft hægt að ná mun betri stjórn á sjúkdómnum.

Hvað gerist í mígrenikasti?

Select this paragraph to add your own text. Just drag and drop or click here to add this paragraph to your site, then you can add your own content and make changes to the font.
Meðferðir
við mígreni
Select this paragraph to add your own text. Just drag and drop or click here to add this paragraph to your site, then you can add your own content and make changes to the font.
...xx