

Hvernig virkar botox við mígreni?

Nákvæm verkun lyfsins á mígreni er ekki að fullu þekkt. Vísindamenn telja að það geti hamlað flutning á taugaboðefni sem flytur verkjaboð og spilar virkan þátt í mígreni. Það getur þannig dregið úr eða rofið vítahring sársaukaboða sem myndast við langvinnt mígreni. Sömuleiðis er talið að vöðvaspenna í höfði og hálsi hafi neikvæð áhrif á mígreni og botox getur minnkar hana.
Hverjir sprauta Botoxi?
Eingöngu læknar sem hafa sérþekkingu og reynslu af notkun Botox hafa leyfi til að meðhöndla sjúklinga með þessari meðferð. Greining á langvinnu mígreni þarf að hafa verið staðfest af taugalækni með sérþekkingu á mígreni áður en meðferð með Botox hefst.
Þessi verkun á lyfinu kom í ljós fyrir einskæra tilviljun þegar fólk fór í botox í fegrunaraðskyni og lýsti fækkun mígreniskasta í kjölfarið.
Botoxi er sprautað í mörgum litlum stungum með mjög fínni nál grunnt undir húð á ákveðin svæði á höfði og hálsi. Sprautað er á um 30 staði, meðal annars í enni, við gagnauga, hnakka, í háls og á herðasvæði. Þetta kann að hljóma ógnvekjandi en meðferðin tekur aðeins nokkrar mínútur og er mun skárri en að fá mígreniskast!
Verkun lyfsins er tímabundin og varir að jafnaði í um 3 mánuði. Meðferðin er því endurtekin á um 12 vikna fresti. Styttra bil á milli meðferða getur aukið hættu á að líkaminn myndi mótefni gegn lyfinu.
Hvar er sprautað?


Árangur meðferðar
Meðferð með Botox við langvinnu mígreni er langtíma meðferð og árangur kemur ekki endilega fram strax. Ef ekki hefur náðst viðunandi árangur eftir sex til níu mánuði (tvær til þrjár meðferðir) er yfirleitt ekki talin ástæða til að halda meðferðinni áfram.
Á meðan Botox-meðferð stendur er almennt mælt með því að sjúklingur haldi áfram sinni hefðbundnu fyrirbyggjandi mígrenismeðferð. Ef Botox-meðferðin skilar góðum árangri má síðar íhuga að draga breytingar á öðrum fyrirbyggjandi lyfjum í samráði við lækni.
Eins og með önnur lyf getur Botox valdið aukaverkunum. Flestar eru vægar og tímabundnar.
Algengast er að finna fyrir:
-
verk eða eymslum á stungustað
-
höfuðverk
-
þreytu eða slappleika
-
stífleika eða verkjum í hálsi
-
tímabundnum vöðvaslappleika.
Sumir geta einnig fundið fyrir almennri vanlíðan eða flensulíkum einkennum eftir meðferð. Í meðferð við mígreni er sprautað 200 einingum af botox, en í fegrunarskyni er oft notað 30-50 einingar. Þessi stóri skammtur veldur því frekar flensueinkennum.
mögulegar Aukaverkanir
https://migrainetrust.org/live-with-migraine/healthcare/treatments/botox/#page-section-1
https://my.clevelandclinic.org/health/treatments/botox-for-migraines

Botox
við mígreni
Botox, eða botulinum toxin A, er taugaeitur sem unnið er úr bakteríunni Clostridium botulinum (bótúlíneitur). Efnið hefur tímabundin áhrif á taugaboð til vöðva og veldur því að vöðvar slakna tímabundið. Botox er meðal annars notað í fegrunarskyni en einnig í læknisfræðilegum tilgangi við ýmsum sjúkdómum og kvillum.
Botox er meðal annars notað sem fyrirbyggjandi meðferð við langvinnu mígreni hjá fullorðnum. Meðferðin kemur helst til greina hjá einstaklingum sem upplifa höfuðverk 15 daga eða fleiri í mánuði, þar af mígreniseinkenni að minnsta kosti 8 daga.
Einnig er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem hafa ekki fengið nægjanlegan árangur af öðrum fyrirbyggjandi meðferðum. Botox er ekki ætlað til meðferðar við mígreni þegar köstin eru færri en 8 á mánuði, né við langvinnum spennuhöfuðverk eða höfuðverk sem tengist ofnotkun lyfja.