
Matur sem mígrenikveikja
Flest okkar með mígreni þekkja að ýmislegt í daglegu lífi getur haft áhrif á mígrenið og ýtt af stað mígrenikasti.
Þetta geta verið margir ólíkir þættir, svo sem truflanir á svefni, hormónasveiflur, streita og aðrir sálrænir þættir, veðurbreytingar og síðast en ekki síst matur og aðrir fæðutengdir þættir.
Matur getur verið mígrenikveikja hjá sumum, en það er mjög einstaklingsbundið. Það sem veldur kasti hjá einum þarf ekki að hafa sömu áhrif hjá öðrum. Einnig eru margir sem finna engin tengsl við ákveðin matvæli.


Hvaða matvæli geta tengst mígreni?
Rannsóknir víða um heim benda til þess að allt að 64% fólks með mígreni tengi einkenni sín við ákveðin matvæli eða aðra fæðutengda þætti. Margir nefna fleiri en eitt matvæli. Hjá sumum getur eitt ákveðið matvæli verið nóg til að ýta af stað kasti, en hjá öðrum virðist samspil nokkurra þátta skipta meira máli eða ákveðnar fæðusamsetningar.
Í íslenskri rannsókn tengdu 76% þátttakenda mígrenieinkenni sín við ákveðin matvæli eða aðra fæðutengda þætti.
Fæðukveikjurnar sem oftast eru nefndar í erlendum rannsóknum eru:
-
Áfengi, sérstaklega rauðvín
-
Sítrusávextir (appelsínur, sítrónu, lime og fl.)
-
Mygluostar
-
Súkkulaði
-
Mjólkurvörur
-
Unnar kjötvörur og reykt kjöt
-
Gervisætuefni (t.d aspartame)
-
Nítrít og nítröt (finnst t.d í unnum kjötvörum, notað sem rotvarnarefni eða bragðefni í sumum matvælum)
-
Týramín (finnst t.d. í mygluostum, reyktum fisk og kjöti, gerjuðum mat, bjór og fl.)
-
Koffín
-
Svengd eða fasta
Í íslensku rannsókninni voru algengustu fæðukveikjurnar rauðvín, hvítvín, lakkrís og reykt kjöt, auk svengdar og/eða föstu. Sem er mjög í takt við aðrar niðurstöður, þó er lakkrísinn algengari hér en annars staðar.
Það er þó mikilvægt að hafa í huga að þessar upplýsingar þýða ekki að allir sem fá mígreni þurfi að forðast þessi matvæli. Fæðukveikjur eru mjög einstaklingsbundnar og flestir þurfa ekki að útiloka matvæli sem þeir þola vel.
Getur maturinn
sjálfur verið orsökin?
Tengsl matar og mígrenis eru ekki alltaf einföld. Þó að sumir upplifi skýr og endurtekin tengsl milli ákveðins matar og mígrenikasta er ekki alltaf ljóst hvort maturinn sjálfur hafi komið kastinu af stað.
Ein möguleg skýring er að löngun í ákveðin matvæli geti verið eitt af fyrstu einkennum mígrenikasts. Áður en höfuðverkurinn kemur fram geta orðið breytingar í heilanum sem hafa meðal annars áhrif á matarlyst og löngun í ákveðinn mat. Einstaklingur getur þá allt í einu fengið mikla löngun í ákveðið matvæli og borðað það. Þegar mígrenikastið kemur í kjölfarið getur verið auðvelt að álykta að maturinn hafi valdið kastinu, þó að löngunin í matinn hafi í raun verið hluti af upphafi mígrenikastsins.
Á hinn bóginn hafa rannsóknir einnig sýnt að sumir geta haft gagn af því að forðast matvæli sem þeir vita af reynslu að tengjast mígreniköstum hjá þeim. Hjá þessum einstaklingum getur það dregið úr tíðni kasta og jafnvel haft áhrif á lengd þeirra og styrk.

Þarf að forðast ákveðin matvæli?

Ekki er ráðlagt að útiloka fjölda matvæla úr fæðinu nema skýr og endurtekin tengsl séu á milli þeirra og mígrenikasta. Of mikil takmörkun á mataræði getur gert það erfiðara að borða fjölbreytt og næringarríkt fæði og getur einnig haft neikvæð áhrif á lífsgæði. Stöðugar áhyggjur af því hvað megi og megi ekki borða geta aukið streitu og kvíða – sem sjálft getur verið kveikja að mígreni.
Ef þig grunar að matur hafi áhrif á mígrenið getur verið gagnlegt að halda einfalda mígrenidagbók. Þar getur þú skráð hvað þú borðar, hvenær mígrenieinkenni koma fram og hvaða aðrir þættir gætu verið að spila inn í eins og svefnvenjur, streita, hormónabreytingar eða óreglulegar máltíðir.
Með því að fylgjast með þessu í einhvern tíma getur þú öðlast betri skilning á eigin mynstri og áttað þig á því hvort ákveðin matvæli eða matarvenjur tengjast mígreniköstunum þínum.
Gott að hafa í huga
Það er enginn einn „mígrenismatur“ sem allir þurfa að forðast. Fæðukveikjur eru einstaklingsbundnar og það sem hefur áhrif á einn getur verið alveg vandræðalaust fyrir annan.
Markmiðið er því ekki að útiloka sem flest matvæli heldur að þekkja eigin kveikjur og finna jafnvægi. Þannig er hægt að draga úr mígreniköstum án þess að mataræðið verði óþarflega takmarkandi eða valdi streitu. Almennt heilbrigt mataræði sem er í takt við almennar ráðleggingar um mataræði frá Embætti landlæknis er það mataræði sem kemur best út fyrir fólk með mígreni. (https://island.is/naering-radleggingar-landlaeknis)
Matur á að vera hluti af góðu og fjölbreyttu lífi en ekki uppspretta stöðugra áhyggja.
Hægt er að lesa meira um algengar fæðukveikjur mígrenis á Íslandi í greininni minni í Læknablaðinu 12. tbl. 110. árg. 2024. Einnig hægt að smella á linkinn: https://www.laeknabladid.is/tolublod/2024/12/faeda-sem-migrenikveikja
Hadda Margrét
Klínískur Næringarfræðingur
