top of page

Mígreni
fasar

pexels-karola-g-5207363 Large.jpeg

Hegðun mígrenis vísar til þess hvernig mígrenið birtist og þróast hjá hverjum einstaklingi fyrir sig - hvað gerist fyrir

kast, á meðan á því stendur og eftir það. Mígreni getur haft ákveðið mynstur, en hvert okkar upplifir mígreni á sinn hátt. 

 

Að þekkja hegðun og mynstur eigin mígrenis getur hjálpað þér að átta þig fyrr á því að mígreniskast sé í uppsiglingu. Það getur því gefið þér tækifæri til þess að undirbúa þig og bregðast við  í tæka tíð.

 

Skjót viðbrögð geta dregið úr alvarleika og lengd mígreniskastsins. Mígrenisköst hafa yfirleitt 4 fasa.

 

​

Mikilvægt er að horfa á mígreniskast sem heildstætt ferli ekki eingöngu sem höfuðverk.

pexels-karola-g-6028544 Large.jpeg

Fyrsti fasinn er fyrirboði, svokölluð viðvörun, sem getur byrjað klukkustundum eða jafnvel dögum fyrir kast. Flestir upplifa þennan fasa, hvort sem það er fyrir öll köst eða öðruhverju.

 

Algeng einkenni eru m.a. :

  • Þreyta

  • Aukin næmni fyrir umhverfisáhrifum

  • Kvíði og vanlíðan eða aukin orka

  • Sterk löngun í ákveðna fæðu

  • Skapbreytingar, m.a. kvíði, þunglyndi og mikill pirringur

  • Tíð þvaglát

  • Geysp

 

​

fyrirboði

Fyrsti fasi -

​​

  • Breyting á matarlyst

  • Aukinn þorsti

  • Tíð þvaglát

  • Svefnörðugleikar

  • Mikill geyspi

  • Heilaþoka

  • Erfiðleiki við einbeitingu

  • Erfiðleiki við að meðtaka og vinna úr upplýsingum 

  • Málstol

  • Skyndileg ofvirkni

  • Svimi

  • Klaufska

  • Vökvasöfnun og bjúgur í andliti og höndum

  • Nefstífla

  • Stífla og þrýstingur í skútum (e. sinus)

  • Rauð augu og aukin táramyndun

  • Skyndileg kulda og/eða hitaköst, bæði staðbundin og ekki

  • Magaverkir, niðurgangur eða hægðartregða

  • Steinaflakk í eyrum (e. vertigo) og svimi vegna þess.

  • Snertiverkir

Þekktu þín fyrstu merki. Þá getur þú betur undibúið þig fyrir mögulegt kast.

Annar fasi -

Ára

pexels-evlogia-pictures-3056207-28200735 Large.jpeg

Annar fasinn er ára, sem kemur yfirleitt fram 5-60 mínútum áður en höfuðverkja fasinn kemur. Áran getur haft áhrif á sjón, skynjun og tal. Hún gengur yfirliett yfir á innan við klukkustund. Aðeins þeir sem eru með Mígreni með áru upplifa þennan fasa, en það eru um 25-30% fólks með mígreni. Sumir fá áru án þess að höfuðverkur fylgi í kjölfarið. Einnig er misjafnt hvort ára fylgir öllum köstum hjá þeim sem upplifa hana. 

 

Algeng einkenni áru eru m.a. 

  • Sjóntruflanir

  • Skyntruflanir

  • Erfiðleikar með tal

  • Ljósblossar eða sikksakk línur

  • Dofi eða náladofi

  • Önnur tímabundin taugaeinkenni

 

Þekktu hvað er eðlilegt fyrir þig. Ef það koma skyndilega ný eða óvenjuleg einkenni er gott að leita til læknis.

  • Sjóntruflanir

    • Flöktandi ljós

    • Sikksakk línur

    • Bjartir, eða dökkir blettir

    • Tímabundið sjónleysi eða þokukennd sýn

    • Hliðar Sjónskerðing (e. tunnel vision)

    • Tvísýni 

  • Skyntruflanir

    • Náladofi, oft í andliti eða höndum

    • Doði, oft í fótleggjum, handleggjum, eða eingöngu á einni hlið líkamans

    • Lyktar-ofskynjanir

    • Eyrnasuð

    • Svimi

    • Jafnvægisleysi

    • Hljóð óþol

    • Heilaþoka

  • Tal og tungumálaeinkenni

    • Óskýrt eða ruglingslegt tal

    • Erfiðleikar við að finna og muna rétt orð

    • Erfiðleikar við að lesa, skrifa eða skilja talað mál.

 

  • Líkamleg einkenni

    • Nefstífla/nefrennsli

    • Bólga, þrýstingur og hiti í andliti

    • Vöðvaslappleiki

 

  • Klaufaskapur

  • Skert samhæfing vöðva

  • Óstöðugleiki 

  • Tímabundin lömum (e. hemiglepia) - mikið máttleysi eða algjör vanhæfni til að hreyfa annan helming líkamans

  • Yfirlið

  • Skammvinnt meðvitundarleysi

  • Önnur tímabundin taugaeinkenni

pexels-evlogia-pictures-3056207-28200735 Large.jpeg

Höfuðverkur

þriðji fasi -

pexels-nicola-barts-7927362 Large.jpeg

Þriðji fasi er höfuðverkja fasinn en hann einkennist af púlserandi verk öðrum eða báðum megin í höfðinu. Staðsetning og styrkur verkjarins getur verið mismunandi frá einu kasti til annars. Einkennin geta einnig breyst meðan á sama kastinu stendur. Þessi fasi getur varað allt frá nokkrum klukkustundum upp í þrjá daga.

 

Allgeng einkenni í höfuðverkjafasanum eru m.a.

  • Höfuðverkur

  • Ógleði og uppköst

  • Aukin næmni fyrir áreiti

  • Andleg vanlíðan

  • Heilaþoka

  • Versnun við hreyfingu

 

Fylgdu þinni meðferðaráætlun og hvíldu þig í rólegu umhverfi ef mögulegt er

  • Höfuðverkur

    • Púlserandi höfuðverkir

    • Verkir eingöngu öðru megin í höfði, sem getur þó færst milli hliða

    • Verkir í öllu höfðinu

    • Versnun verkja við hreyfingu

  • Ógleði og uppköst

  • Breyting á matarlyst

  • Sterk löngun í ákveðna fæðu

  • Aukin viðkvæmni fyrir áreiti

  • Ljósfælni

  • Hljóðfælni

  • Lyktarfælni 

  • Þreyta

  • Svefnörðugleikar

  • Verkur og stirðleiki í hálsi og herðum

  • Andleg vanlíðan

  • Heilaþoka

  • Skapbreytingar

Fjórði fasi -

Fjórði og síðasti fasinn eru eftirköst, oft kallað mígrenis,,þynnka”. Þessi fasi kemur yfirleitt fram eftir að höfuðverkjafasanum lýkur og getur varað frá nokkrum klukkustundum upp í einhverja daga. Ekki allir upplifa þennan fasa og hann fylgir ekki endilega öllum köstum.

​

Algeng einkenni eru m.a. 

  • Mikil þreyta

  • Verkir í líkamanum

  • Erfiðleikar með einbeitingu

  • Aukin næmni fyrir áreiti

  • Heilaþoka

  • Almennt orkuleysi eða slappleiki

​

Einblíndu á hvíld, þó svo að höfuðverkjafasinn hafi gengið yfir er kastið oft ekki búið og gott er að forðast áreiti og kveikjur.

​
 

  • er meira???????

Eftirköst

pexels-ron-lach-10608041 Large.jpeg

Það getur tekið tíma að læra að þekkja sitt mígreni. Köst eru ekki öll eins og þú færð ekki endilega sömu einkenni eða upplifir alla fasa í hverju kasti.

Mælt er með að gefa sér tíma í að hlusta á líkamann, fylgjast með einkennum og líðan. Mígrenisdagbók getur hjálpað þér að sjá mynstur og átta þig á því hvað hjálpar. Með tímanum getur þú lært að þekkja fyrstu merki um að mígreniskast sé að hefjast og brugðist fyrr við.

 

Mundu að enginn þarf ekki að takast á við mígrenið ein/n/tt. Ekki hika við að leita hjálpar og ræða við heilbrigðisstarfsfólk og jafningja ef þú þarft á stuðningi að halda.

 

Þekktu merkin, Þekktu fasana, Þekktu þitt mígreni.

bottom of page