

Mígrenis
fasar
Hegðun mígrenis vísar til þess hvernig mígrenið birtist og þróast hjá hverjum einstaklingi fyrir sig. Hvað gerist fyrir
kast, á meðan á því stendur og eftir að því líkur. Mígreni getur haft ákveðið mynstur, en hvert okkar upplifir mígreni á sinn hátt.
Að þekkja hegðun og mynstur eigin mígrenis getur hjálpað þér að átta þig fyrr á því að mígreniskast sé í uppsiglingu. Það getur því gefið þér tækifæri til þess að undirbúa þig og bregðast við í tæka tíð.
Skjót viðbrögð geta dregið úr alvarleika og lengd mígreniskastsins. Mígrenisköst hafa yfirleitt 4 fasa.
Mikilvægt er að horfa á mígreniskast sem heildstætt ferli ekki eingöngu sem höfuðverk.


Fyrsti fasinn er fyrirboði, svokölluð viðvörun, sem getur byrjað klukkustundum eða jafnvel dögum fyrir kast. Flestir upplifa þennan fasa, hvort sem það er fyrir öll köst eða öðru hverju.
Algeng einkenni eru m.a. :
-
Þreyta
-
Aukin næmni fyrir umhverfisáhrifum, m.a. ljósum, látum og lyktum.
-
Kvíði, vanlíðan eða aukin orka
-
Sterk löngun í ákveðna fæðu
-
Skapbreytingar, m.a. kvíði, þunglyndi og mikill pirringur
-
Breyting á matarlyst
fyrirboði
Fyrsti fasi -
Líkamleg einkenni
-
Mikil þreyta og orkuleysi
-
Aukin svefnþörf
-
Erfiðleikar með svefn
-
Óeðlilega mikill geispi
-
Stífni eða eymsli í vöðvum
-
Almennur slappleiki
-
Þyngsli eða óþægindi í líkamanum
-
Svimi og jafnvægisleysi
-
Hita- og/eða kuldaköst, bæði staðbundin og ekki
-
Aukin svitamyndun
-
Tíðari þvaglát
-
Mikill þorsti
-
Bjúgur eða vökvasöfnun
-
Breytingar á kynhvöt
-
Hiksti
Einkenni frá taugakerfi
-
Heilaþoka
-
Erfiðleikar með einbeitingu og skýra hugsun
-
Hægari hugsun
-
Minniserfiðleikar
-
Málstol og erfiðleikar með að finna og muna rétt orð
-
Erfiðleikar við að lesa, skrifa eða skilja ritað mál, sem og talað mál
-
Erfiðleikar við að taka við og vinna úr upplýsingum
-
Erfiðleikar við að taka ákvarðanir
-
Klaufaskapur
Skyntruflanir og skynnæmi
-
Ljós- og hljóðfælni
-
Lyktarfælni
-
Breytt eða óvenjulegt lyktarskyn, jafnvel lyktar-ofskynjanir
-
Óskýr sjón
-
Sjóntruflanir
-
Aukin næmni fyrir eðlilegu umhverfisáreiti
Meltingareinkenni
-
Ógleði
-
Breytt matarlyst
-
Löngun í ákveðinn mat
-
Kviðóþægindi
-
Meltingartruflanir
-
Breytingar á hægðum, hægðatregða eða niðurgangur
Skap og tilfinningar
-
Skapbreytingar
-
Depurð, pirringur og/eða kvíði
-
Tilfinningaleg viðkvæmni
-
Eirðarleysi
-
Aukin viðkvæmni fyrir streitu
-
Breytt félagsleg hegðun, aukin löngun í að vera ein/n/tt
-
Tilfinning um að eitthvað slæmt sé yfirvofandi
-
Erfiði við að sinna daglegum verkum
-
Minna andlegt úthald
Þekktu þín fyrstu merki. Þá getur þú betur undibúið þig fyrir mögulegt kast.
Annar fasi -
Ára

Annar fasinn er ára, sem kemur yfirleitt fram 5-60 mínútum áður en höfuðverkja fasinn kemur. Áran getur haft áhrif á sjón, skynjun og tal. Hún gengur yfirleitt yfir á innan við klukkustund. Aðeins þeir sem eru með mígreni með áru upplifa þennan fasa, en það eru u.þ.b. 25-30% fólks með mígreni. Sumir fá áru án þess að höfuðverkur fylgi í kjölfarið. Einnig er misjafnt hvort ára fylgir öllum köstum hjá þeim sem upplifa hana.
Algeng einkenni áru eru m.a.
-
Sjóntruflanir
-
Skyntruflanir
-
Erfiðleikar með tal
-
Ljósblossar eða sikksakk línur
-
Dofi eða náladofi
-
Önnur tímabundin taugaeinkenni
Þekktu hvað er eðlilegt fyrir þig. Ef það koma skyndilega ný eða óvenjuleg einkenni er gott að leita til læknis.
Skyntruflanir
-
Sjóntruflanir
-
Flöktandi ljós
-
Sikksakk línur
-
Bjartir, eða dökkir blettir
-
Tímabundið sjónleysi eða þokukennd sýn
-
Sjónviðsskerðing (e. tunnel vision)
-
Tvísýni
-
Breytt dýptar og fjarlægðarskyn
-
Óskýr sjón, og jafnvel tímabundin sjónleysi.
Líkamleg einkenni
-
Mikil þreyta
-
Svefnörðuleikar
-
Máttleysi, tímabundið og oft eingöngu á annarri hlið líkamans
-
Erfiðleikar við að hreyfa útlimi, jafnvel skortur á samhæfingu hreyfinga.
-
Svimi og jafnvægisleysi
-
Eyrnasuð
-
Skert heyrn
-
Stífni og eymsli í vöðvum
-
Almennur slappleiki
Taugakerfiseinkenni
-
Heilaþoka eða ruglingur
-
Málstol
-
Óskýrt eða ruglingslegt tal
-
Erfiðleikar með að finna eða segja rétt orð
-
Erfiðleikar með að skilja talað mál
-
Erfiðleikar við að lesa, skrifa eða skilja ritað mál
-
Minnkuð meðvitund eða yfirliðstilfinning

Höfuðverkur
þriðji fasi -

Þriðji fasi er höfuðverkja fasinn, en hann einkennist af púlserandi verk öðrum eða báðum megin í höfðinu. Staðsetning og styrkur verkjarins getur verið mismunandi frá einu kasti til annars og einkennin geta einnig breyst meðan á sama kastinu stendur. Þessi fasi getur varað allt frá nokkrum klukkustundum upp í þrjá daga.
Allgeng einkenni í höfuðverkjafasanum eru m.a.
-
Höfuðverkur
-
Ógleði og uppköst
-
Aukin næmni fyrir áreiti
-
Andleg vanlíðan
-
Heilaþoka
-
Versnun við hreyfingu
Fylgdu þinni meðferðaráætlun og hvíldu þig í rólegu umhverfi ef mögulegt er
Líkamleg einkenni
-
Mikil þreyta
-
Svefnörðugleikar
-
Slappleiki
-
Skyndileg hita- og kuldaköst
-
Óeðlilega mikill geispi
-
Þyngsli og óþægindi víðsvegar um líkamann.
-
Tárarennsli
-
Rauð augu og aukin táramyndun
-
Bólga í kringum augu
-
Breytingar á sjáöldrum
-
Aukin svitamyndun
-
Roði og bólga í andliti
-
Föl húð
-
Mikill þorsti
-
Tíðari þvaglát
Höfuðverkur
-
púlsandi, stingandi eða þrýstandi verkir , sem oftast versnar við hreyfingu
-
Verkir öðrum eða báðum megin í höfði, sem geta færst á milli hliða
-
Verkur í enni, gagnaugum, hnakka, andliti eða bak við augu
-
Stífni og/eða eymsli í vöövum í hálsi og herðum
-
Verkir í og bakvið augu
Skap og tilfinningar
-
Depurð, pirringur og/eða kvíði
-
Skapbreytingar
-
Erfiðleikar við að sinna daglegum
-
Minna andlegt úthald
-
Tilfinning um að eitthvað slæmt sé yfirvofandi
-
Hræðsla
Taugakerfiseinkenni
-
Heilaþoka
-
Erfiðleikar með einbeitingu og skýra hugsun
-
Hægari hugsun
-
Minniserfiðleikar
-
Málstol og erfiðleikar með að finna og muna rétt orð
-
Erfiðleikar við að lesa, skrifa eða skilja ritað mál, sem og talað mál
-
Erfiðleikar við að taka við og vinna úr upplýsingum
-
Erfiðleikar við að taka ákvarðanir
-
Klaufaskapur
Skyntruflanir
-
Ljós- og hljóðfælni
-
Breytt lyktarskyn, jafnvel lyktar-ofskynjanir
-
Aukin viðkvæmni fyrir snertingu og venjuleg snerting verður sársaukafull (e.allodony)
-
Verkur við breytingar á hitastigi
-
Sjóntruflanir
-
Óskýr sjón
-
Matur eða ákveðin matarlykt getur orðið óbærileg
Meltingareinkenni
-
Ógleði
-
Uppköst
-
Kviðverkir, uppþemba og/eða óþægindi í maga
-
Niðurgangur eða hægðatregða
-
Tíðari hægðalosun
-
Breytt matarlyst, ýmist minnkuð eða aukin
Fjórði fasi -
Eftirköst
Fjórði og síðasti fasinn eru eftirköst, oft kallað mígrenis,,þynnka”. Þessi fasi kemur yfirleitt fram eftir að höfuðverkjafasanum lýkur og getur varað frá nokkrum klukkustundum upp í einhverja daga. Ekki allir upplifa þennan fasa og hann fylgir ekki endilega öllum köstum.
Algeng einkenni eru m.a.
-
Mikil þreyta
-
Verkir í líkamanum
-
Erfiðleikar með einbeitingu
-
Aukin næmni fyrir áreiti
-
Heilaþoka
-
Almennt orkuleysi eða slappleiki
Einblíndu á hvíld, þó svo að höfuðverkjafasinn hafi gengið yfir er kastið oft ekki búið og gott er að forðast áreiti og kveikjur.

Líkamleg einkenni
-
Mikil þreyta, sem hverfur oft ekki með svefni
-
Mikil syfja og aukin svefnþörf
-
Svefntruflanir
-
Erfiðleikar við að sofna og vakna
-
Slappleiki og almenn vanlíðan
-
Tilfinning um að vera andlega og líkamlega úrvinda
-
Leifar af höfuðverk sem situr eftir
-
Þyngsli, þreyta og/eða eða þrýstingur í höfði
-
Stífni og eymsli í vöðvum í hálsi og herðum
-
Eymsli í andliti og hársverði
-
Svimi og jafnvægisleysi
-
Hita- og eða kuldaköst
-
Aukin svitamyndun
-
Föl húð
-
Mikill þorsti og tíðari þvaglát
Taugakerfiseinkenni
-
Heilaþoka
-
Einbeitingar- og minniserfiðleikar
-
Hægari og óskýrari hugsun
-
Erfiðleikar með að finna og muna rétt orð
-
Erfiðleikar við að tala, skrifa og lesa
-
Erfiðleikar við að taka við og vinna úr upplýsingum
-
Erfiðleikar við að taka ákvarðanir
-
Minna andlegt úthald
-
Erfiðleikar við að sinna daglegum verkefnum
-
Tilfinning um að vera „ekki alveg komin/n til baka“
Skyntruflanir
-
Ljós- og hljóðfælni
-
Breytt lyktarskyn, og oft lyktar-ofskynjanir
-
Viðkvæmni fyrir snertingu
-
Eymsli í hársverði
-
Sjón verður óskýr og/eða óþægileg
-
Óþægindi eða þrýstingur kringum augu
-
Aukin viðkvæmni fyrir eðlilegu áreiti
Meltingareinkenni
-
Ógleði og/eða uppköst
-
Breytt matarlyst, ýmist minnkuð eða aukin
-
Óeðlilegt hungur
-
Kviðóþægindi
-
Meltingartruflanir
-
Breytingar á hægðum
Skap og tilfinningar
-
Depurð, pirringur og/eða kvíði
-
Skapbreytingar
-
Tilfinningaleg viðkvæmni
-
Eirðarleysi
-
Léttir og vellíðan eftir kastið
-
Vellíðan
-
Tilfinning um að vera ekki komin/n aftur í eðlilegt ástand
-
Hræðsla og kvíði fyrir næsta kasti
Það getur tekið tíma að læra að þekkja sitt mígreni. Köst eru ekki öll eins og þú færð ekki endilega sömu einkenni eða upplifir alla fasa í hverju kasti.
Mælt er með að gefa sér tíma í að hlusta á líkamann, fylgjast með einkennum og líðan. Mígrenisdagbók getur hjálpað þér að sjá mynstur og átta þig á því hvað hjálpar. Með tímanum getur þú lært að þekkja fyrstu merki um að mígreniskast sé að hefjast og brugðist fyrr við.
Mundu að enginn þarf ekki að takast á við mígrenið ein/n/tt. Ekki hika við að leita hjálpar og ræða við heilbrigðisstarfsfólk og jafningja ef þú þarft á stuðningi að halda.
Þekktu merkin, Þekktu fasana, Þekktu þitt mígreni.
