
Hvað er hormónamígreni?
Hormónatengt mígreni tengist breytingum á hormónamagni. Algengast er að tala um það í tengslum við tíðahringinn, en hormónabreytingar á öðrum tímabilum ævinnar geta einnig haft áhrif á mígreni, til dæmis á meðgöngu, eftir fæðingu, á meðan brjóstagjöf stendur yfir, á tíðahvörfum og við notkun hormónagetnaðarvarna.
Talið er að stór hluti þeirra sem fá mígreni og fara á blæðingar finni fyrir tengslum milli mígreniskasta og tíðahrings. Hjá flestum koma köst einnig á öðrum tímum mánaðarins, en hjá sumum koma þau eingöngu í tengslum við blæðingar.
Þegar mígreni tengist sérstaklega blæðingum er talað um tíðatengt mígreni.
Hvenær telst mígreni tíðatengt?

Tíðatengt mígreni tengist ákveðnum tíma í kringum upphaf blæðinga. Samkvæmt alþjóðlegri flokkun höfuðverkjasjúkdóma (ICHD-3) er miðað við að mígrenisköst komi á tímabilinu frá tveimur dögum fyrir upphaf blæðinga og fram á þriðja dag blæðinga, í að minnsta kosti tveimur af hverjum þremur tíðahringjum.
Hreint tíðamígreni: Mígrenisköst koma eingöngu á þessu tímabili í kringum blæðingar og ekki á öðrum tímum tíðahringsins.
Tíðatengt mígreni: Mígrenisköst koma bæði í kringum blæðingar og á öðrum tímum tíðahringsins.
Mígrenisdagbók getur verið mjög gagnleg til að greina hvort slíkt mynstur sé til staðar. Gott er að skrá mígrenisköst og blæðingar í að minnsta kosti þrjá tíðahringi.
Tíðatengdu mígreni má skipta í tvo flokka
Tíðatengt mígreni tengist meðal annars breytingum á estrógenmagni. Rétt fyrir blæðingar lækkar magn estrógens hratt. Talið er að þessi breyting geti haft áhrif á taugakerfið og aukið líkur á mígreniskasti hjá einstaklingum með mígreni. Estrógen er þó líklega aðeins hluti af skýringunni. Fleiri breytingar eiga sér stað í líkamanum í kringum blæðingar og samspil hormóna, taugakerfis og þeirra boðefna sem koma að mígreni er flókið. Ekki er enn að fullu ljóst hvers vegna hormónasveiflur hafa mikil áhrif á mígreni hjá sumum en lítil eða engin áhrif hjá öðrum.
Hormónabreytingin sjálf er eðlilegur hluti tíðahringsins. Þess vegna getur verið erfiðara að forðast þennan kveikjuþátt en ýmsa aðra þætti sem geta haft áhrif á mígreni.
Áhrif hormóna á mígreni


Hvernig lýsir tíðatengt mígreni sér?
Tíðatengt mígreni getur haft sömu einkenni og önnur mígrenisköst. Einkenni geta meðal annars verið:
-
miðlungs til mikill höfuðverkur, oft púlsandi og stundum öðrum megin í höfðinu
-
höfuðverkur sem versnar við venjulega hreyfingu
-
ógleði og/eða uppköst
-
ljós-, hljóð- og lyktarnæmi
-
svimi
-
sjóntruflanir
-
mikil þreyta
-
heilaþoka og einbeitingarerfiðleikar
-
dofi eða náladofi
-
Kviðóþægindi
Listinn er ekki tæmandi og einkenni geta verið mjög mismunandi milli einstaklinga.
Tíðatengd mígrenisköst eru oft án áru, en fólk sem fær mígreni með áru getur einnig fundið fyrir tengslum milli kasta og tíðahrings. Hjá sumum geta tíðatengd köst verið lengri, kröftugri og meira hamlandi en mígrenisköst sem koma á öðrum tímum mánaðarins. Þau geta einnig verið þrálátari eða komið aftur eftir tímabundinn bata.
Mígreni þarf heldur ekki alltaf að fela í sér höfuðverk. Önnur mígreniseinkenni geta verið verulega hamlandi þótt höfuðverkur sé lítill eða enginn.

Hormón og mígreni á mismunandi æviskeiðum
Hormón hafa ekki eingöngu áhrif í kringum blæðingar. Mígreni getur breyst á ýmsum tímabilum þegar hormónastarfsemi líkamans breytist.
Meðganga: Hjá mörgum dregur úr mígrenisköstum á meðgöngu, sérstaklega mígreni án áru. Þetta á þó ekki við um alla og mígreni getur einnig haldist óbreytt eða versnað.
Eftir fæðingu: Eftir fæðingu verður hröð breyting á hormónamagni og mígrenisköst geta komið aftur eða aukist hjá sumum. Sömuleiðis getur brjóstagjöf haft áhrif.
Tíðahvörf: Á árunum fyrir tíðahvörf geta hormónasveiflur orðið meiri og óreglulegri. Hjá sumum verður mígreni því tíðara eða erfiðara á þessu tímabili. Eftir tíðahvörf getur mígreni hins vegar batnað hjá mörgum.
Hormónagetnaðarvarnir: Hormónagetnaðarvarnir geta haft mismunandi áhrif á mígreni. Hjá sumum batnar mígreni, hjá öðrum versnar það og hjá enn öðrum verður lítil breyting.
Mögulegar meðferðir

Engin ein meðferð hentar öllum. Meðferð fer meðal annars eftir tíðni og alvarleika kasta, hvort mígreni er með eða án áru, öðrum sjúkdómum og því hvort köstin koma fyrirsjáanlega í tengslum við blæðingar.
Bráðameðferð
Meðferð við einstöku mígreniskasti getur meðal annars falist í:
-
verkjalyfjum og/eða bólgueyðandi lyfjum
-
mígrenilyfjum, svo sem triptanlyfjum
-
öðrum sértækum bráðalyfjum við mígreni
Oft skiptir máli að taka bráðalyf snemma í kastinu samkvæmt leiðbeiningum læknis.
Skammtímaforvörn í kringum blæðingar
Einn kostur við tíðatengt mígreni er að köstin geta verið nokkuð fyrirsjáanleg hjá sumum. Ef tíðahringurinn er reglulegur getur því stundum verið hægt að nota skammtímafyrirbyggjandi meðferð (á ensku mini-prevention)
Þá er fyrirbyggjandi meðferð tekin í nokkra daga í kringum þann tíma sem búist er við mígreniskasti. Meðferðin getur meðal annars falist í ákveðnum triptanlyfjum eða bólgueyðandi lyfjum. Í sumum tilfellum kemur hormónameðferð einnig til greina.
Slík meðferð þarf að alltaf að vera í samráði við lækni.
Langtíma fyrirbyggjandi meðferð
Ef mígrenisköst eru tíð eða koma einnig reglulega utan blæðinga getur hefðbundin fyrirbyggjandi mígrenismeðferð komið til greina, til dæmis:
-
CGRP-miðuð lyf
-
önnur fyrirbyggjandi mígrenilyf
-
Botox hjá fólki með langvinnt mígreni
-
hormónameðferð í völdum tilfellum
Stundum þarf að nota fleiri en eina meðferð samtímis til að ná góðum árangri.

Lyfjalaus bjargráð
Ýmis bjargráð geta hjálpað við mígreni, þó áhrifin séu einstaklingsbundin:
-
reglulegar máltíðir
-
nægur vökvi
-
reglulegur svefn og eins stöðugur svefntími og mögulegt er
-
hvíld í rólegu og dimmu umhverfi meðan á kasti stendur
-
kæli- eða hitameðferð
-
raförvunartæki sem ætluð eru til meðferðar við mígreni
-
regluleg hreyfing eftir getu
-
hófleg og regluleg koffínneysla ef koffín hefur ekki neikvæð áhrif á mígrenið
-
mígrenisdagbók
Það getur verið gagnlegt að forðast miklar sveiflur í svefni, máltíðum og vökvainntöku, sérstaklega á þeim dögum tíðahringsins þegar líkur á mígreniskasti eru mestar.
Mígrenisdagbók getur hjálpað

Ef grunur er um tíðatengt mígreni getur verið gagnlegt að halda dagbók í að minnsta kosti þrjá tíðahringi.
Til dæmis má skrá:
-
fyrsta og síðasta dag blæðinga
-
hvaða daga mígrenisköst koma
-
hversu lengi þau vara
-
styrkleika einkenna
-
hvort ára komi fram
-
hvaða lyf eru tekin
-
hvort og hversu vel meðferð virkar
Þannig verður auðveldara að sjá hvort ákveðið mynstur sé til staðar og upplýsingarnar geta einnig hjálpað lækni við val á meðferð.

Hormónagetnaðarvarnir og mígreni
-
samsettum hormónagetnaðarvörnum sem innihalda estrógen hjá einstaklingum
með mígrenimeð áru,
Ef þú ert með mígreni er mikilvægt að ræða val á hormónagetnaðarvörn við lækni eða annan heilbrigðisstarfsmann. Sérstaklega þarf að huga að
geta tengst aukinni hættu á blóðþurrðarslagi.
Val á getnaðarvörn er þó einstaklingsbundið og þarf meðal annars að taka mið af því hvort mígrenið er með eða án áru og öðrum áhættuþáttum.
þar sem bæði mígreni með áru og notkun estrógens
þar sem bæði
mígreni með áru og notkun estrógens
geta tengst aukinni hættu á blóðþurrðarslagi.
Val á getnaðarvörn er þó einstaklingsbundið og þarf meðal annars að taka mið af því hvort mígrenið er með eða án áru og öðrum áhættuþáttum.
Hvenær á að leita til læknis?
Gott getur verið að leita ráðgjafar ef:
-
þú tekur eftir skýru sambandi milli tíðahrings og mígreniskasta
-
mígrenisköstin eru tíð, langvarandi eða mjög hamlandi
-
erfitt er að ná stjórn á einkennunum með núverandi meðferð
-
köstin verða tíðari eða einkenni breytast frá því sem þú átt að venjast
-
þú ert óviss um hvaða mígrenimeðferð eða hormónagetnaðarvörn hentar þér
-
þú færð ný eða óvenjuleg taugaeinkenni
-
þú hefur áhyggjur af einkennum þínum
Skyndilegur, mjög mikill eða óvenjulegur höfuðverkur eða ný taugaeinkenni geta þurft brátt læknismat.
