top of page
Studio photography of a focused young woman working on her laptop. She has a thoughtful expression, set against a clean, minimalist background.

Starfsmaðurinn minn er með mígreni

– Hvað þarf ég að vita?

Mígreni er ekki bara höfuðverkur. Það er flókinn taugasjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á starfsgetu, einbeitingu, úthald og líðan. Einkenni eru mismunandi milli einstaklinga og geta einnig verið mjög breytileg frá einum degi til annars.

​

En áður en við tölum um mígreni er mikilvægt að hafa eitt í huga:

Það sem skiptir alla starfsmenn máli er að mæta skilningi, virðingu og trausti á vinnustað – hvort sem þeir eru veikir eða frískir.

Við erum öll mannleg og starfsgeta okkar er ekki nákvæmlega eins alla daga. Góður vinnustaður gerir ráð fyrir þessum mannlega breytileika. Þegar langvinnur og oft ósýnilegur sjúkdómur eins og mígreni bætist við verður skilningur stjórnenda og samstarfsfólks enn mikilvægari.

Studio photography of a customer support agent with a headset working at a computer desk. The atmosphere is professional and focused within an office workspace.

Mígreni er ekki alltaf sýnilegt

Eitt af því sem getur gert mígreni erfitt á vinnustað er að sjúkdómurinn er oft ósýnilegur.

​

Starfsmaður getur litið út fyrir að vera við góða heilsu en samt verið með mikinn höfuðverk, ógleði, ljós- eða hljóðnæmi, svima, sjóntruflanir, einbeitingarerfiðleika eða mikla þreytu.

​

Mígreniskast getur haft fleiri en einn fasa. Sumir finna fyrir fyrirboðaeinkennum klukkustundum eða jafnvel dögum áður en höfuðverkurinn hefst. Þau geta meðal annars verið þreyta, skapbreytingar, geispar og ljósnæmi. Sumir fá einnig áru, til dæmis sjóntruflanir eða önnur tímabundin taugaeinkenni.

​

Þegar höfuðverkurinn er horfinn er kastinu heldur ekki endilega lokið. Eftirköst mígrenis geta fylgt í kjölfarið og meðal algengra einkenna eru þreyta og einbeitingarerfiðleikar. Sumir lýsa þessu sem eins konar „heilaþoku“.

Studio photography of a woman with blonde hair working at a desk in an office setting. The atmosphere is professional and focused with natural light.

„En hann var alveg hress áðan – og í gær“

Mígreni er lotubundinn sjúkdómur. Einstaklingur getur verið við góða heilsu einn daginn en verið óvinnufær þann næsta.

Það þýðir ekki að starfsmaðurinn sé óáreiðanlegur.

​

Mígrensikast getur komið með tiltölulega litlum fyrirvara og dæmigert mígreniskast getur staðið í 4–72 klukkustundir. Hjá sumum eru köstin sjaldgæf en hjá öðrum koma þau mun oftar.

​

Krónískt mígreni er samkvæmt alþjóðlegum greiningarskilmerkjum skilgreint sem höfuðverkur 15 daga eða fleiri á mánuði í meira en þrjá mánuði, þar sem að minnsta kosti átta dagar á mánuði hafa einkenni mígrenis.

​

Starfsgeta einstaklings með mígreni getur því sveiflast – og það er hluti af eðli sjúkdómsins.

Að mæta veikur til vinnu

Studio photography of a woman sitting at a desk, rubbing her eyes with exhaustion while working on a laptop. The atmosphere is professional yet stressed or overwhelmed.

Þegar rætt er um áhrif mígrenis á atvinnulífið er auðvelt að einblína eingöngu á veikindadaga. En önnur hlið málsins getur verið jafn mikilvæg: að starfsmaður mæti til vinnu þrátt fyrir að vera í mígreniskasti.

​

Starfsmaðurinn er þá á vinnustaðnum en starfsgetan getur verið skert.

Hann getur átt erfitt með að lesa af skjá, einbeita sér, taka þátt í fundum, vinna undir miklu áreiti eða sinna verkefnum sem krefjast mikillar athygli. Rannsóknir hafa sýnt að áhrif mígrenis á atvinnu snúast bæði um fjarvistir og skerta starfsgetu meðan fólk er í vinnu.

​

Sumir mæta vegna þess að þeir vilja ekki valda samstarfsfólki auknu álagi. Aðrir geta óttast að vera taldir óáreiðanlegir eða „alltaf veikir“.

Þá getur skapast sú staða að starfsmaður reynir ítrekað að vinna í gegnum köstin í stað þess að fá þann sveigjanleika sem gæti hjálpað honum að halda starfsgetu til lengri tíma.

Studio photography of a woman with long dark hair rubbing her forehead, suggesting stress or deep thought. Her hand displays intricate henna designs against a minimalist dark background.

Spyrðu frekar en að gera ráð fyrir

Það er ekki til ein lausn sem hentar öllum með mígreni.

Góð byrjun getur einfaldlega verið samtal:

Digital graphic of a glowing neon pink question mark centered on a dark purple background. The vibrant, clean aesthetic conveys a modern, inquisitive mood.

„Hvað getum við gert á vinnustaðnum sem myndi hjálpa þér þegar mígrenið er slæmt?“

Starfsmaðurinn þekkir yfirleitt best hvaða aðstæður gera einkennin verri og hvað hjálpar honum.

​

Markmiðið er ekki að stjórnandinn verði sérfræðingur í mígreni heldur að starfsmaður og vinnustaður geti saman fundið raunhæfar lausnir sem taka mið af bæði þörfum starfsmannsins og eðli starfsins.

Litlar breytingar geta skipt miklu máli

a man in a tie is holding a light bulb in his hand

Aðlögun þarf ekki endilega að vera flókin eða kostnaðarsöm.

Það sem getur hjálpað starfsmanni þínum er til dæmis:

​

  • sveigjanlegur vinnutími

  • möguleiki á fjarvinnu þegar starfið leyfir

  • möguleiki á að færa verkefni til innan dagsins

  • stutt hlé þegar einkenni byrja

  • aðgangur að rólegu og dimmu rými tímabundið

  • minni eða stillanleg lýsing

  • að draga úr glampa frá skjám

  • möguleiki á að forðast sterka lykt

  • regluleg matar-, drykkjar- og hvíldarhlé

  • sveigjanleiki varðandi fundi þegar kast kemur upp

  • tímabundin breyting á verkefnum þegar einkenni eru mikil

​

Það sem skiptir mestu máli er að aðlögunin taki mið af þörfum einstaklingsins og eðli starfsins. Það sem hjálpar einum þarf ekki að hjálpa öðrum.

Vinnuumhverfið getur haft áhrif

Mígreni á sér flóknar líffræðilegar orsakir og mikilvægt er að gera einstaklinginn ekki ábyrgan fyrir sjúkdómnum með því að segja honum einfaldlega að „forðast kveikjur“.

​

Það er mjög einstaklingsbundið hvaða þættir tengjast mígrenisköstum. Það sem hefur mikil áhrif á einn einstakling getur haft lítil eða engin áhrif á annan. Þar að auki getur verið erfitt að greina á milli raunverulegra kveikja og breytinga sem eru þegar hluti af upphafi mígreniskasts.

​

Ákveðnar aðstæður í vinnuumhverfi geta þó aukið líkur á kasti eða gert einkenni verri hjá sumum, til dæmis sterk eða flöktandi lýsing, mikill hávaði, sterk lykt, langvarandi skjávinna, óreglulegar máltíðir, vaktavinna, svefnröskun og álag.

​

Þess vegna skiptir samtalið við starfsmanninn meira máli en almennur listi yfir „mígreniskveikjur“.

Ekki gera starfsmanninn að sjúkdómnum sínum

Casual Office Meeting

Starfsmaður með mígreni getur verið framúrskarandi starfsmaður.

Hann getur verið reynslumikill, skapandi, samviskusamur og mikilvægur vinnustaðnum þótt hann þurfi stundum ákveðinn sveigjanleika vegna langvinns sjúkdóms.

​

Mikilvægt er að starfsmaður upplifi ekki að veikindin skilgreini stöðu hans innan vinnustaðarins.

​

Setningar eins og:

​

​

eða

​

​

geta virst saklausar en geta upplifast sem vantrú eða dómur. Slík viðbrögð geta gert starfsmanni erfiðara fyrir að segja frá einkennum eða óska eftir aðstoð þegar hennar er þörf.

​

Stuðningur og skilningur á vinnustað getur hins vegar skipt miklu fyrir fólk sem reynir að samræma vinnu og langvinnan sjúkdóm.

„Þú ert nú alltaf með hausverk.“

„Ertu með mígreni aftur?“

Skilningur þýðir ekki minni kröfur

Að sýna skilning þýðir ekki að gera engar kröfur til starfsmanns eða taka af honum alla ábyrgð.

​

Góð stjórnun felst frekar í því að horfa á manneskjuna á bak við starfið og finna leiðir til að starfsmaður geti nýtt starfsgetu sína eins vel og mögulegt er.

​

Stundum getur hvíld í rólegu rými, tímabundin fjarvinna, breyting á verkefnum eða annar sveigjanleiki hjálpað starfsmanni að halda starfsgetu. Í öðrum tilvikum eru einkennin það mikil að besta lausnin er að starfsmaður fari heim, fái viðeigandi meðferð og hvílist.

​

Sveigjanleiki getur þannig verið mikilvægur þáttur í að styðja við starfsgetu til lengri tíma.

a man is sitting in front of a window holding a tablet and a pen

Traust skiptir máli

Fólk með mígreni getur upplifað að þurfa að útskýra eða réttlæta veikindi sín, meðal annars vegna þess að sjúkdómurinn er oft ekki sýnilegur öðrum.

​

Á vinnustað þar sem ríkir traust er auðveldara að segja:

„Ég finn að kast er að byrja. Ég þarf að taka lyfin mín og fara í rólegt umhverfi.“

Í vinnuumhverfi þar sem starfsmaður óttast neikvæð viðbrögð getur verið erfiðara að segja frá einkennum eða óska eftir breytingum.

​

Þegar starfsmaður finnur að honum er mætt af virðingu og trausti skapast betri grundvöllur fyrir opin samskipti og samstarf um raunhæfar lausnir.

Þegar mígreni hefur mikil áhrif á mætingu

Ef starfsmaður er með tíðar fjarvistir vegna mígrenis er mikilvægt að nálgast málið með skipulögðum og lausnamiðuðum hætti.

 

Spurningin ætti ekki eingöngu að vera:

a bald man is laying in bed using a tablet

„Af hverju ertu svona oft frá vinnu?“

Heldur líka:

„Er eitthvað í vinnufyrirkomulaginu sem við getum breytt til að auðvelda þér að vera í vinnu?“

Þar getur verið gagnlegt að skoða tímabundna eða varanlega aðlögun, vinnutíma, verkefni og vinnuumhverfi og eftir atvikum fá ráðgjöf frá fagaðilum á sviði vinnuverndar, heilsuverndar starfsmanna eða starfsendurhæfingar.

​

Einstaklingsmiðuð nálgun skiptir máli. Markmiðið ætti að vera að finna jafnvægi þar sem tekið er tillit til heilsu starfsmanns, starfsgetu hans og þeirra verkefna sem þarf að sinna.

Þetta snýst ekki bara um mígreni

Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta ekki eingöngu um mígreni.

Það sem skiptir alla starfsmenn máli er að mæta skilningi, virðingu og trausti – hvort sem þeir eru veikir eða frískir.

Við erum öll manneskjur og starfsgeta okkar er ekki nákvæmlega eins alla daga. Stundum glímum við við veikindi, tímabundið álag eða erfiðar aðstæður og stundum erum við full af orku og getum gefið meira af okkur.

Góður vinnustaður gerir ráð fyrir þessum mannlega breytileika.

Það þýðir að við hlustum, sýnum hvert öðru virðingu og reynum að finna lausnir þegar þess er þörf.

Skilningur er ekki sérmeðferð. Hann er hluti af góðri stjórnun og góðri vinnustaðamenningu.

bottom of page