
Mígreniskveikjur
Flestir sem glíma við mígreni kannast við að ákveðnar aðstæður eða breytingar í umhverfinu virðast geta kallað fram mígreniskast. Sumir tengja köstin við streitu, svefnleysi eða hormónabreytingar en aðrir við veðurbreytingar, sterka lykt eða ákveðin matvæli. Við köllum þessa þætti mígreniskveikjur (á ensku migraine trigger).
Sambandið milli kveikja og mígrenis er mjög flókið. Það sem virðist kalla fram mígreniskast hjá einum hefur ekki endilega sömu áhrif á annan. Jafnvel hjá sama einstaklingi getur ákveðin kveikja bara stundum framkallað kast en stundum ekki.

Hvað eru mígreniskveikjur?
Mígreniskveikjur eru innri eða ytri þættir sem geta aukið líkur á mígreniskasti á frekar stuttum tíma. Þær eru ekki undirliggjandi orsök mígrenis heldur þættir sem geta haft áhrif á það hvenær kast kemur.
Mígreni er flókinn taugasjúkdómur þar sem næmi taugakerfisins fyrir ýmsum áreitum getur verið breytilegt. Þess vegna geta áhrif mögulegra kveikja verið mismunandi eftir aðstæðum og ástandi einstaklingsins hverju sinni.
Rannsóknir hafa sýnt að allt að 76% einstaklinga með mígreni telja sig geta greint ákveðnar kveikjur. Það er þó mikilvægt að hafa í huga að rannsóknir á kveikjum byggjast oftast á upplifun og frásögnum þátttakenda. Það að einstaklingur upplifi tengsl milli ákveðins þáttar og mígreniskasts staðfestir ekki endilega að þátturinn hafi valdið kastinu.

Algengustu mígreniskveikjurnar
Fjölmargir þættir hafa verið tengdir mígrenisköstum. Meðal þeirra algengustu sem fólk nefnir eru:
-
Streita: Andlegt álag og breytingar á streitustigi, meðal annars þegar slökun tekur við eftir mikið álag.
-
Svefntruflanir: Of lítill svefn, of mikill svefn, óreglulegur svefn eða breytingar á svefnvenjum.
-
Hormónabreytingar: Sérstaklega sveiflur á estrógeni í tengslum við tíðahringinn.
-
Óreglulegar máltíðir: Langur tími á milli máltíða eða að sleppa máltíðum.
-
Matvæli: Sum matvæli, áfengi og sum aukefni sem notuð eru í matvæli.
-
Veðurbreytingar: Breytingar á loftþrýstingi, hitastigi eða öðrum veðurþáttum.
-
Skynáreiti: Sterkt ljós, hávaði, sterk lykt eða önnur áreiti úr umhverfinu.
-
Þreyta og líkamlegt álag: Mikil þreyta, áreynsla eða breytingar á daglegri rútínu.
Þótt þessir þættir séu oft nefndir sem kveikjur þá eru vísindin á bak við þessi orsakasambönd missterk. Hormónabreytingar í tengslum við tíðir eru til dæmis vel þekktur áhættuþáttur, á meðan tengsl ýmissa fæðutegunda og umhverfisþátta eru óljósari.

Mígrenisþröskuldur
Hvers vegna kalla sömu kveikjur ekki alltaf mígreniskast?

Eins og kom fram hér að ofan þá virðast ákveðnir þættir stundum kallað fram mígreniskast en hafa engin áhrif í öðrum tilfellum. Einstaklingur gæti til dæmis sofið illa eina nótt án þess að fá mígreniskast, en fengið kast eftir sambærilega nótt þegar mikið álag eða hormónabreytingar eru einnig til staðar.
Ein tilgáta sem hefur verið notuð til að útskýra þetta er svokallaður mígrenisþröskuldur (e. Migraine threshold). Samkvæmt tilgátunni er næmi taugakerfisins fyrir mígreniköstum breytilegt. Ýmsir inri og ytri þættir geta haft áhrif á þetta næmi og aukið eða minnkað líkurnar á að kast komi fram. Þegar einstaklingur er nálægt sínum mígrenisþröskuldi gæti tiltölulega lítið áreiti nægt til að hrinda kasti af stað. Þegar næmið er minna gæti sami þáttur hins vegar haft lítil eða engin áhrif.
Fötukenningin
Einföld leið til að útskýra þennan mígrenisþröskuld er svokölluð fötukenning (e. Bucket theory). Með þessari myndlíkingu má ímynda sér að hver og einn eigi sína fötu sem táknar hversu mikið samanlagt álag taugakerfið þolir áður en líkur á mígrenikasti aukast.
Ýmsir þættir geta bætt vatni í fötuna. Til dæmis streita, svefnleysi, hormónabreytingar, óreglulegar máltíðir og ákveðin umhverfisáreiti. Hver þáttur fyrir sig þarf ekki að nægja til að kalla fram kast, en þegar margir þættir fara saman getur fatan fyllst og að lokum flætt yfir. Í kjölfarið fer svo mígreniskastið af stað.
Fatan er heldur ekki alltaf jafn full. Á sumum dögum getur taugakerfið verið viðkvæmara og þá þarf minna til þess að það flæði yfir. Á öðrum dögum gæti svo taugakerfið þolað meira og sömu áreiti haft minni áhrif.
Þessi myndlíking getur einnig hjálpað til við að útskýra hvers vegna sumir upplifa að mígrenisköst komi fram án augljósrar kveikju. Ýmsir þættir geta haft áhrif á næmi taugakerfisins án þess að einstaklingur verði endilega var við þá.
Fötukenningin er þó einföldun á flóknum líffræðilegum ferlum. Hún er ekki vísindalega staðfest skýring á því hvernig mígreniköst hefjast og ekki er hægt að mæla hversu full fatan er hverju sinni. Mígreniköst geta einnig hafist án þess að þekktar kveikjur séu til staðar.


Eru kveikjur alltaf raunverulegar kveikjur ?
Eitt af því sem gerir rannsóknir á mígreniskveikjum flóknar er að mígreniskast getur hafist löngu áður en höfuðverkurinn kemur fram. Í fyrirboðafasa geta komið fram ýmis einkenni, jafnvel mörgum klukkutímum eða allt að tveimur sólarhringum áður en höfuðverkur hefst.
Þessi einkenni geta meðal annars verið:
-
Löngun í ákveðna fæðu, til dæmis súkkulaði.
-
Aukið næmi fyrir ljósi, hljóði og lykt.
-
Stífleiki eða verkir í hálsi
Einstaklingur sem fær mikla löngun í súkkulaði áður en mígreniskast hefst gæti til dæmis talið að súkkulaði hafi kallað fram kastið. En í rauninni gæti þessi löngun hafa verið fyrirboðaeinkenni. Sama á við um ljós, lykt og hálsverki. Aukið næmi fyrir þessum þáttum getur verið hluti af mígreniskastinu sjálfu frekar en orsök þess.
Rannsóknir hafa sýnt að talsverð skörun getur verið milli þess sem fólk telur vera mígreniskveikjur og fyrirboðaeinkenna. Þetta undirstrikar hversu flókið getur verið að greina hvað raunverulega kallar fram mígreniskast og hvað er hluti af kastinu sjálfu. En þetta þýðir ekki að slíkar kveikjur séu aldrei raunverulegar, heldur að mikilvægt er að greina á milli þess sem gæti aukið líkur á kasti og þess sem er þegar einkenni sjúkdómsins.

Er nauðsynlegt að forðast allar kveikjur?
Það hefur lengi verið algengt að fólki með mígreni sé ráðlagt að bera kennsl á kveikjurnar sínar og forðast þær eins og kostur er. Nýrri nálganir leggja hins vegar meiri áherslu á að sambandið milli kveikja og kasta sé flókið og að algjör forðun sé ekki alltaf besta leiðin.
Sumar kveikjur er erfitt eða alveg ómögulegt að hafa einhverja stjórn á, svo sem hormónabreytingar eða veðurfar. Aðrar eru hluti af daglegu lífi og ekki alltaf raunhæft að forðast.
Of mikil áhersla á að forðast mögulegar kveikjur getur einnig leitt til óþarfa takmarkana, aukinnar streitu og ótta við að fá mígreniskast. Þetta getur haft neikvæð áhrif á lífsgæði, sérstaklega þegar reynt er að forðast margar aðstæður án þess að skýr tengsl við köst hafi verið staðfest.
Rannsakendur hafa því bent á að gagnlegra getið verið að læra að takast á við ákveðin áreiti, fremur en að reyna að forðast þau alveg. Slík nálgun þarf þó að vera einstaklingsmiðuð og hentar ekki endilega öllum kveikjum eða öllum einstaklingum.
Hjá sumum getur verið gagnlegt að draga úr áhrifum ákveðinna þátta, til dæmis með reglulegum svefni og máltíðum. Hjá öðrum getur verið mikilvægara að vinna að því að bæta almenna stjórn á sjúkdómnum með fyrirbyggjandi meðferð.
Markmiðið er því ekki að útrýma öllum mögulegum kveikjum heldur að finna raunhæft jafnvægi sem styður við lífsgæði og meðferð mígrenis.

Getur mígrenisdagbók hjálpað?

Mígrenisdagbókin getur verið gagnlegt verkfæri til að fylgjast með tíðni kasta, einkennum og mögulegum áhrifaþáttum. Með skráningu yfir lengri tíma getur verið auðveldara að greina hvort ákveðnar aðstæður tengist mígrenisköstum endurtekið. Þessar upplýsingar geta líka nýst við að meta árangur meðferðar og í samtali við heilbrigðisstarfsfólk.
Mígreni er ekki einstaklingnum að kenna
Þó svo að ákveðnir þættir geti aukið líkur á mígreniskasti er ekki alltaf hægt að koma í veg fyrir köst með því að breyta lífsvenjum eða forðast kveikjur. Mígrenisköst geta komið hvenær sem er án ástæðu, jafnvel þó einstaklingurinn sé að gera „allt rétt“ eins og að passa svefninn, borða reglulega, draga úr streitu og álagi og svo framvegis.
Mígreniskast er ekki merki um að eitthvað hafi verið gert rangt. Þekking á mögulegum kveikjum getur verið gagnlegur hluti af því að skilja sjúkdóminn betur, en hún kemur ekki í stað viðeigandi meðferðar.
