Félagsaðild að Mígrenissamtökunum, hér eftir nefndum samtökunum, er opin einstaklingum sem styðja tilgang þeirra og markmið.
Tilgangur samtakanna er meðal annars að gæta hagsmuna fólks með mígreni og aðra höfuðverkjasjúkdóma, auka fræðslu og þekkingu og stuðla að bættum lífsgæðum þeirra sem sjúkdómarnir hafa áhrif á.
Um félagsaðild fer samkvæmt samþykktum samtakanna og skilmálum þessum. Ef ósamræmi er þar á milli ganga samþykktir samtakanna framar.
Félagsaðild hefst þegar skráning hefur borist og samtökin hafa staðfest aðildina. Við skráningu skulu samþykktir samtakanna, skilmálar þessir og upplýsingar um félagsgjald vera aðgengileg.
Skilmálar um félagsaðild að Mígrenissamtökunum
1. Um félagsaðild
3. Skyldur félagsmanna
2. Réttindi félagsmanna
Félagsmenn geta:
-
Tekið þátt í starfi samtakanna samkvæmt samþykktum þeirra.
-
Fengið upplýsingar um starfsemi, viðburði og fræðsluefni samtakanna.
-
Tekið þátt í aðalfundi og nýtt atkvæðisrétt eftir því sem samþykktir samtakanna kveða á um.
-
Komið á framfæri hugmyndum og ábendingum um starfsemi samtakanna.
-
Óskað eftir aðgangi að lokuðum jafningjahópi samtakanna á Facebook samkvæmt sérstökum hópreglum.
Þátttaka í Facebook-hópnum er valfrjáls og ekki skilyrði félagsaðildar. Sérstakt þátttökugjald kann að vera tekið fyrir einstaka viðburði eða námskeið og skal þá upplýst um það áður en skráning fer fram.
Félagsmenn skulu:
-
Virða samþykktir samtakanna, skilmála þessa og reglur sem gilda um einstaka þætti félagsstarfsins.
-
Sýna öðrum virðingu og stuðla að öruggu og uppbyggilegu félagsstarfi.
-
Gæta trúnaðar um persónulegar upplýsingar annarra sem þeir fá vitneskju um í félagsstarfinu. Ekki má miðla slíkum upplýsingum, færslum eða skjáskotum án leyfis viðkomandi.
-
Greiða félagsgjöld samkvæmt 4. gr.
-
Tilkynna samtökunum um breytingar á samskiptaupplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna félagsaðildar.
Trúnaðarskylda um persónulegar upplýsingar annarra helst eftir að félagsaðild lýkur.
Fjárhæð félagsgjalds er ákveðin af þeim aðila sem hefur til þess heimild samkvæmt samþykktum samtakanna. Við gildistöku þessara skilmála er fullt árlegt félagsgjald 2.500 kr.
Gjaldatímabilið er frá 1. apríl til 31. mars næsta árs. Félagsgjald er innheimt árlega með gjalddaga 1. apríl.
Við nýskráningu greiðist gjald fyrir það sem eftir er af yfirstandandi gjaldatímabili sem hér segir:
-
Við nýskráningu 1. apríl til 30. september greiðist fullt félagsgjald, nú 2.500 kr.
-
Við nýskráningu 1. október til 31. mars greiðist hálft félagsgjald, nú 1.250 kr.
Gjalddagi við nýskráningu kemur fram í greiðslukröfu. Við upphaf næsta gjaldatímabils greiðist fullt félagsgjald, nema úrsögn hafi áður borist samkvæmt 6. gr.
Upplýsingar um fjárhæð félagsgjalds og gjalddaga skulu liggja fyrir við skráningu. Breytingar á félagsgjaldi skulu kynntar félagsmönnum með hæfilegum fyrirvara fyrir upphaf þess gjaldatímabils sem þær taka til, þannig að þeim gefist kostur á að segja sig úr samtökunum áður en ný greiðsluskylda stofnast.
4. Félagsgjöld
Samtökin vinna með persónuupplýsingar vegna félagaskrár, innheimtu félagsgjalda, samskipta við félagsmenn og skipulagningar félagsstarfs.
Nánari upplýsingar um vinnsluna, þar á meðal tilgang hennar og heimildir, varðveislu upplýsinga, viðtakendur og réttindi félagsmanna, koma fram í persónuverndarstefnu samtakanna
Um þátttöku í Facebook-hópi samtakanna gilda sérstakar hópreglur. Félagsmenn eru hvattir til að gæta varúðar við miðlun persónulegra upplýsinga. Þótt hópurinn sé lokaður er ekki hægt að tryggja að upplýsingar sem þar eru birtar berist aldrei út fyrir hann.
5. Persónuupplýsingar og jafningjahópur
Félagsmaður getur sagt sig úr samtökunum með tölvupósti á gjaldkeri@migrenissamtokin.is. Tilkynningin þarf að bera með sér hver óskar úrsagnar.
Úrsögn tekur gildi þegar tilkynningin berst samtökunum. Samtökin skulu staðfesta móttöku hennar.
Til að greiðsluskylda vegna næsta gjaldatímabils stofnist ekki þarf úrsögn að hafa borist fyrir 28. mars.
Úrsögn fellir ekki niður ógreidd félagsgjöld sem stofnað hefur verið til fyrir gildistöku hennar. Greitt félagsgjald er að jafnaði ekki endurgreitt vegna úrsagnar á miðju gjaldatímabili. Ofgreidd eða ranglega innheimt gjöld skulu þó endurgreidd.
Við lok félagsaðildar fellur niður aðgangur að þeim þáttum starfsins sem eingöngu eru ætlaðir félagsmönnum, þar á meðal lokuðum jafningjahópi samtakanna.
6. Úrsögn og lok greiðsluskyldu
Skilmálum þessum verður aðeins breytt með ákvörðun þess aðila sem hefur til þess heimild samkvæmt samþykktum samtakanna. Breytingar á skilmálunum fela ekki í sér breytingar á samþykktum samtakanna.
Félagsmönnum skal tilkynnt um verulegar breytingar með hæfilegum fyrirvara áður en þær taka gildi. Í tilkynningunni skal koma fram í hverju breytingarnar felast og hvenær þær taka gildi.
Gildandi skilmálar skulu ávallt vera aðgengilegir félagsmönnum.
7. Breytingar á skilmálum
Skilmálar þessir taka gildi 01.11.2026.
Með skráningu staðfestir umsækjandi að hafa kynnt sér samþykktir samtakanna og skilmála þessa og samþykkir aðild á þeim grundvelli.
8. Gildistaka og staðfesting
Persónuverndarstefna Mígrenissamtakanna
Mígrenissamtökin leggja áherslu á ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Í þessari stefnu kemur fram hvaða upplýsingum við söfnum, hvers vegna við notum þær, hversu lengi við varðveitum þær og hvaða réttindi þú átt.
Mígrenissamtökin, kt. 440926-0100, eru ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu sem hér er lýst. Fyrirspurnir og beiðnir vegna persónuupplýsinga má senda á migrenissamtokin@migrenissamtokin.is.
Hvaða upplýsingar vinnum við með og hvers vegna?
Félagsaðild
Við skráum nafn, netfang, upphaf og lok félagsaðildar og upplýsingar um félagsgjöld og greiðslustöðu. Án þeirra kann að vera ómögulegt að ljúka skráningu.
Kennitala er aðeins skráð ef hún er nauðsynleg vegna innheimtu félagsgjalda.
Við notum upplýsingarnar til að halda félagaskrá, annast félagsgjöld og senda nauðsynlegar upplýsingar um félagsaðild og félagsstarf, svo sem fundarboð. Vinnslan byggist á framkvæmd aðildarsambands þíns við samtökin. Varðveisla bókhaldsgagna byggist á lagaskyldu.
Félagsaðild er opin öllum sem styðja tilgang og markmið samtakanna. Ekki er skilyrði fyrir aðild að vera með mígreni eða annan höfuðverkjasjúkdóm og við óskum ekki eftir upplýsingum um sjúkdómsgreiningu við skráningu.
Framlög og greiðslur
Við vinnum með þær upplýsingar sem þarf til að taka við og halda utan um stök eða regluleg framlög. Það geta verið nafn, kennitala, samskiptaupplýsingar, fjárhæð framlags og upplýsingar um greiðslu þess.
Vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum samtakanna af því að taka við framlögum, fylgja fyrirmælum gefenda og halda utan um greiðslur. Skráning og varðveisla bókhaldsgagna byggist á lagaskyldu.
Mígrenissamtökin stofna kröfu hjá banka fyrir félagsgjöldum og þurfa því kennitölu og samskiptaupplýsingar. Fyrir stök framlög er bæði hægt að greiða þann styrk beint inn á bankareikning samtakanna, kt. 440926-0100 og rnr. 0133-26-024625, eða hafa samband við gjaldkera með tölvupósti á gjaldkeri@migrenissamtokin.is til þess að stofna kröfu í netbanka fyrir þeirri upphæð sem viðkomandi vill styrkja um.
Vörukaup
Ef þú kaupir vörur af samtökunum vinnum við með nafn, samskiptaupplýsingar, afhendingarupplýsingar og upplýsingar um pöntun og greiðslu, eftir því sem þarf til að afgreiða kaupin. Án þeirra kann að vera ómögulegt að afgreiða viðkomandi viðskipti.
Vinnslan byggist á framkvæmd kaupsamnings. Varðveisla bókhaldsgagna byggist á lagaskyldu.
Almennar fyrirspurnir
Ef þú hefur samband við okkur vinnum við með samskiptaupplýsingar þínar og efni erindisins til að svara því og sinna nauðsynlegri eftirfylgni. Vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum samtakanna af því að eiga samskipti við þá sem leita til þeirra.
Samtökin sinna almennri fræðslu og hagsmunagæslu en veita ekki læknisfræðilega ráðgjöf eða persónulega ráðgjöf vegna einstaklingsmála. Við óskum ekki eftir læknisgögnum eða öðrum persónugreinanlegum heilsufarsupplýsingum. Vinsamlegast sendu okkur ekki slíkar upplýsingar.
Berist slíkar upplýsingar óumbeðnar takmörkum við aðgang að þeim og eyðum þeim eins fljótt og unnt er. Við notum þær ekki í hagsmunastarfi samtakanna.
Fréttabréf og kynningar
Við notum netfang þitt til að senda fréttabréf og rafrænar kynningar ef þú hefur samþykkt það.
Þú getur afturkallað samþykkið og afskráð þig hvenær sem er, án kostnaðar, með tölvupósti á migrenissamtokin@migrenissamtokin.is. Afturköllun hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu fyrir þann tíma.
Áskrift að fréttabréfi er ekki skilyrði fyrir félagsaðild. Afskráning hefur ekki áhrif á nauðsynleg samskipti vegna félagsaðildar, greiðslna eða pantana.
Samskipti á samfélagsmiðlum
Ef þú sendir okkur skilaboð á Facebook eða Instagram notum við upplýsingar sem fylgja þeim til að svara erindinu. Um tilgang, vinnsluheimild og varðveislutíma gildir það sama og um almennar fyrirspurnir. Vinsamlegast sendu okkur ekki læknisgögn eða aðrar persónugreinanlegar heilsufarsupplýsingar á þessum miðlum.
Við eyðum samskiptum úr aðgangi samtakanna samkvæmt varðveisluviðmiðum okkar. Eyðing hjá okkur felur þó ekki endilega í sér að afrit hjá sendanda eða samfélagsmiðlinum séu einnig eydd. Um eigin vinnslu samfélagsmiðlanna gilda persónuverndarupplýsingar þeirra
Hverjir fá aðgang að upplýsingunum?
Mígrenissamtökin leggja áherslu á ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Í þessari stefnu kemur fram hvaða upplýsingum við söfnum, hvers vegna við notum þær, hversu lengi við varðveitum þær og hvaða réttindi þú átt.
Aðgangur að persónuupplýsingum er takmarkaður við þá sem þurfa á honum að halda vegna verkefna sinna fyrir samtökin.
Við notum þjónustuveitendur vegna vefhýsingar, tölvupósts, félagaskrár, fréttabréfasendinga, greiðsluþjónustu og bókhalds. Þegar þeir vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd fer vinnslan fram samkvæmt vinnslusamningi og fyrirmælum okkar.
Bankar og greiðsluþjónustuveitendur fá þær upplýsingar sem þarf til að framkvæma greiðslur. Þeir geta einnig unnið upplýsingar á eigin ábyrgð vegna lagaskyldna sinna. Um þá vinnslu gildir persónuverndarstefna viðkomandi aðila.
Við miðlum jafnframt upplýsingum til lögbærra yfirvalda þegar okkur ber lagaskylda til þess.
Persónuupplýsingar sem við berum ábyrgð á eru ekki fluttar eða gerðar aðgengilegar utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Hversu lengi varðveitum við upplýsingar?
Varðveislutími fer eftir tilgangi vinnslunnar og lagaskyldum samtakanna:
-
Félagaskrá: Upplýsingar eru varðveittar meðan félagsaðild varir. Þeim er eytt úr virkri félagaskrá innan 1 mánaðar frá lokum aðildar. Upplýsingar sem þarf vegna bókhalds eða óuppgerðra krafna eru varðveittar sérstaklega.
-
Bókhaldsgögn vegna félagsgjalda, framlaga og kaupa: Gögnin eru varðveitt í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs samkvæmt bókhaldslögum. Það tekur ekki sjálfkrafa til annarra upplýsinga um viðkomandi.
-
Almennar fyrirspurnir: Samskiptum er eytt innan sex mánaða frá því að erindi er afgreitt, nema þau tilheyri öðrum gagnaflokki sem þarf að varðveita lengur.
-
Fréttabréf: Netfang er á virkum sendingalista meðan áskrift varir. Sendingum er hætt við afskráningu. Við varðveitum lágmarksupplýsingar um afskráningu, aðgreindar frá virkum lista, meðan sendingastarfsemin heldur áfram til að koma í veg fyrir sendingar án nýs samþykkis. Upplýsingar sem sýna fram á samþykki eru varðveittar meðan það er notað og í allt að 6 mánuði eftir lok áskriftar.
Ef tiltekin gögn eru nauðsynleg vegna réttarágreinings kunna þau að vera varðveitt þar til honum er lokið og ekki er lengur þörf fyrir gögnin vegna hans.
Öryggi upplýsinga
Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, misnotkun og glötun. Þeir sem hafa aðgang að upplýsingunum fyrir okkar hönd skulu gæta trúnaðar og fylgja reglum um meðferð þeirra.
Réttindi þín
Þú getur óskað eftir aðgangi að persónuupplýsingum um þig og afriti af þeim, svo og leiðréttingu rangra eða ófullkominna upplýsinga. Að uppfylltum skilyrðum persónuverndarlöggjafar geturðu einnig óskað eftir eyðingu, takmörkun vinnslu eða flutningi eigin gagna.
Ef við notum persónuupplýsingar á grundvelli lögmætra hagsmuna geturðu óskað eftir að við hættum því og útskýrt hvaða aðstæður liggja að baki. Við hættum þá notkuninni nema við getum sýnt fram á ríkari lögmætar ástæður fyrir henni eða hún sé nauðsynleg vegna réttarkrafna.
Þú getur alltaf hafnað beinni markaðssetningu án þess að gefa upp ástæðu. Ef þú hefur samþykkt tiltekna notkun upplýsinga geturðu afturkallað samþykkið hvenær sem er, til dæmis með því að afskrá þig af fréttabréfi.
Þú getur sent beiðnir vegna persónuupplýsinga á migrenissamtokin@migrenissamtokin.is. Við bregðumst við án ótilhlýðilegrar tafar og upplýsum þig um viðbrögð okkar innan mánaðar frá móttöku beiðninnar. Ef þörf er á vegna fjölda eða flækjustigs beiðna má framlengja frestinn um allt að tvo mánuði. Þá látum við þig vita innan fyrsta mánaðarins og skýrum ástæðuna.
Afgreiðsla beiðna er að jafnaði ókeypis. Ef vafi leikur á hver sendir beiðnina gætum við þurft frekari upplýsingar til að staðfesta það.
Teljir þú að meðferð persónuupplýsinga brjóti gegn persónuverndarlöggjöf geturðu kvartað til Persónuverndar. Upplýsingar um kvörtunarleiðir má nálgast á http:www.island.is/s/personuvernd
Breytingar á stefnunni
Við uppfærum stefnuna þegar þörf krefur. Ef fyrirhuguð er notkun persónuupplýsinga í nýjum tilgangi veitum við viðeigandi fræðslu áður en hún hefst og öflum samþykkis ef þess er þörf.
Síðast uppfært: 01.11.2026
