top of page
Studio photography of a woman receiving a facial cosmetic injection. The scene depicts a professional medical aesthetic procedure in a clean, clinical setting.
Studio photography showing a man receiving a cosmetic injection in his forehead. The medical professional, wearing gloves, carefully administers the treatment.

Hvernig virkar botox við mígreni?

Studio photography showing a gloved hand holding a Botox vial as a syringe draws the medication. The image depicts a professional medical or cosmetic procedure setting.

Nákvæm verkun lyfsins á mígreni er ekki að fullu þekkt. Vísindamenn telja að það geti hamlað flutning á taugaboðefni sem flytur verkjaboð og spilar virkan þátt í mígreni. Það getur þannig dregið úr eða rofið vítahring sársaukaboða sem myndast við langvinnt mígreni. Sömuleiðis er talið að vöðvaspenna í höfði og hálsi hafi neikvæð áhrif á mígreni og botox getur minnkað hana. 

​

​

Hverjir sprauta Botoxi?

Eingöngu læknar sem hafa sérþekkingu og reynslu af notkun Botox hafa leyfi til að meðhöndla sjúklinga með þessari meðferð, hérlendis eru það yfirleitt taugalæknar.

 

Greining á langvinnu mígreni þarf að hafa verið staðfest af taugalækni með sérþekkingu á mígreni, og aðrar fyrirbyggjandi meðferðir reyndar áður en meðferð með Botox hefst.

Þessi verkun á lyfinu kom í ljós fyrir einskæra tilviljun þegar fólk fór í botox í fegrunarskyni og lýsti fækkun mígreniskasta í kjölfarið. 

Botoxi er sprautað í mörgum litlum stungum, með  mjög fínni nál grunnt undir húð, á ákveðin svæði á höfði og hálsi. Sprautað er á um 30 staði, meðal annars í enni, við gagnauga, hnakka, í háls og á herðasvæði. Þetta kann að hljóma ógnvekjandi en meðferðin tekur aðeins nokkrar mínútur og er mun skárri en að fá mígreniskast!

 

Verkun lyfsins er tímabundin og varir að jafnaði í um 3 mánuði. Meðferðin er því endurtekin á um 12 vikna fresti. Styttra bil á milli meðferða getur aukið hættu á að líkaminn myndi mótefni gegn lyfinu.

Hvar er sprautað?

Studio photography of a medical professional performing a cosmetic scalp treatment on a patient. Clean, sterile aesthetic with bright clinical lighting.
Studio photography of several blister packs containing various pills and capsules arranged on a light blue background. The aesthetic is clean, medical, and organized.

Árangur meðferðar

Meðferð með Botox við langvinnu mígreni er langtíma meðferð og árangur kemur ekki endilega fram strax. Ef ekki hefur náðst viðunandi árangur eftir sex til níu mánuði (tvær til þrjár meðferðir) er yfirleitt ekki talin ástæða til að halda meðferðinni áfram.

 

Á meðan Botox-meðferð stendur er almennt mælt með því að sjúklingur haldi áfram sinni hefðbundnu fyrirbyggjandi mígrenismeðferð. Ef Botox-meðferðin skilar góðum árangri má síðar íhuga að hefja breytingar á öðrum fyrirbyggjandi lyfjum í samráði við lækni.

Eins og með önnur lyf getur Botox valdið aukaverkunum. Flestar eru vægar og tímabundnar.

Algengast er að finna fyrir:

  • verk eða eymslum á stungustað

  • höfuðverk

  • þreytu eða slappleika

  • flensulík einkenni (oft kölluð botoxflensa)

  • stífleika eða verkjum í hálsi

  • tímabundnum vöðvaslappleika.

​

Sumir geta einnig fundið fyrir almennri vanlíðan eða flensulíkum einkennum eftir meðferð. Í meðferð við mígreni eru notaðar 200 einingar af botox, en í fegrunarskyni eru oft notað 30-50 einingar. Þessi stóri skammtur veldur því frekar flensueinkennum.

mögulegar Aukaverkanir

a man is getting a botox injection in his forehead

Undirbúningur fyrir meðferð 

Það er eðlilega mjög kvíðavaldandi fyrir sumar að fara í meðferð sem inniheldur svona margar stungur! Sumum finnst hjálpa að vita fyrirfram hverju má búast við. Því höfum við tekið saman lýsingu á læknistíma þar sem botox meðferð er veitt. Læknistíminn, er almennt svona uppsettur :

​

  1. Læknir blandar efnið og dregur í sprautu.

  2. Þú leggst eða sest á bekk og læknir hreinsar stungusvæði með sótthreinsiefni.

  3. Læknir sprautar efninu á u.þ.b. 30 mismunandi svæði - m.a. í andlit, hárlínu, aftanvert höfuð, háls og herðar og þú færir þig á bekknum samkvæmt leiðbeiningum hans. Stungusvæði geta líka verið einstaklingsbundin að einhverju leiti og sumir fá sprautur á aðra staði, t.d. Í kjálkavöðva.

  4. Eftir sprautun er svo aftur hreinsað með sótthreinsiefni, það getur blætt úr stungum, en þá bara í örlitlu magni.

  5. Meðferð lokið, í flestum tilfellum færðu svo tíma aftur eftir 12 vikur.

​

Tíminn er yfirleitt í kringum 20 mínútur. Meðferðin hefur almennt ekki áhrif á getu þess að geta keyrt bíl en ágætt að hafa einhvern með þér í fyrsta skiptið. 

 

Það er ekki mikið sem þarf að gera sérstaklega til undirbúnings fyrir meðferð, en almennt er gott að hafa eftirfarandi punkta í huga þegar þú ferð í læknistímann ;

​

  • Mættu í þæginlegum fötum, sem gefa lækni auðvelt aðgengi að hálsi og herðum.

  • Sumum finnst gott að taka verkjalyf fyrir tímann. Mismunandi er milli einstaklinga hversu miklum sársauka meðferðin veldur. Sumir upplifa mikinn sársauka á meðan aðrir finna lítið sem ekkert fyrir stungunum. 

  • Mættu óförðuð/ófarðaður, eða vertu viðbúin því að læknir hreinsi svæðið í kringum stungusvæði og fjarlægi þannig farða af. Mælt með því að forðast að setja förðunarvörur/krem á svæðin í nokkrar klukkustundir eftir meðferð.

  • Reiknaðu með að gefa þér nokkrar klukkustundir af ró strax á eftir meðferð. Að minnsta kosti eftir fyrsta skiptið á meðan þú þekkir ekki þín viðbrögð við meðferðinni.

  • Mikilvægt er að vita að ekki má fara í heitar sturtu eða heit böð í nokkrar klukkustundir eftir meðferð, eða stunda líkamsrækt. Einnig er mælt með að nudda ekki stungusvæði í 48-72 klukkustundir því þá getur efnið færst til.

Gott að hafa í huga

Botox er ekki fegrunarmeðferð þegar það er notað við langvinnu mígreni. Þá er það gefið samkvæmt sérstöku meðferðarmynstri með það að markmiði að draga úr tíðni og alvarleika mígrenis.

 

Meðferðin hentar ekki öllum og ákvörðun um Botox er tekin í samráði við lækni út frá einkennum, tíðni höfuðverkja og fyrri meðferðum.

 

Markmiðið er ekki að „lækna“ mígrenið heldur að ná betri stjórn á því og fækka þeim dögum sem mígreni hefur áhrif á lífið.

Studio photography of a woman receiving a facial cosmetic injection. The scene depicts a professional medical aesthetic procedure in a clean, clinical setting.

Botox
við mígreni

Botox, eða botulinum toxin A,  er taugaeitur sem unnið er úr bakteríunni Clostridium botulinum (bótúlíneitur). Efnið hefur tímabundin áhrif á taugaboð til vöðva og veldur því að vöðvar slakna tímabundið. Botox er notað við ýmsum sjúkdómum og einkennum þeirra, þar á meðal heilalömun (e. Cerebral palsy), ofvirkri þvagblöðru, vöðvakrömpum, mikilli svitamyndun og fötlun í kjölfar heilablóðfalls. Það er einnig notað í snyrtimeðferð til að draga úr hrukkum og línum í andliti. 

 

En hér viljum við aðallega tala um hvernig botox er notað við mígreni.

Botox er meðal annars notað sem fyrirbyggjandi meðferð við langvinnu mígreni hjá fullorðnum. Meðferðin kemur helst til greina hjá einstaklingum sem upplifa höfuðverk 15 daga eða fleiri í mánuði, þar af mígreniseinkenni að minnsta kosti 8 daga. Einnig er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem hafa ekki fengið nægjanlegan árangur af öðrum fyrirbyggjandi meðferðum.

 

Botox er ekki ætlað til meðferðar við mígreni þegar köstin eru færri en 8 á mánuði, né við langvinnum spennuhöfuðverk eða höfuðverk sem tengist ofnotkun lyfja.

Hvernig er Botox notað?

bottom of page