top of page
Lifestyle photography of a pregnant woman standing in a nursery room. The atmosphere is warm and gentle with soft, bright lighting.

Mígreni á meðgöngu

Meðganga hefur í för með sér miklar hormónabreytingar sem geta haft áhrif á mígreni. Hjá mörgum konum dregur úr mígrenisköstum á meðgöngu, sérstaklega á öðrum og þriðja þriðjungi. Aðrar finna hins vegar fyrir óbreyttum einkennum eða jafnvel versnun.

​

Rannsóknir benda til þess að um 50-75% kvenna með mígreni finni fyrir verulegum bata á meðgöngu, annaðhvort með færri eða vægari köstum. Sumar verða jafnvel tímabundið einkennalausar.

​

Mikilvægt er að konur með mígreni fái viðeigandi fræðslu, stuðning og örugga meðferð á meðgöngu. Þær eiga ekki að þurfa að sætta sig við verulega skerta lífsgæði vegna sjúkdómsins.

Hvers vegna breytist mígreni á meðgöngu?

Studio photography of a pregnant woman smiling while holding a smartphone. The atmosphere is calm and serene with neutral tones.

Estrógen hefur áhrif á starfsemi taugakerfisins og getur haft áhrif á mígreni. Á meðgöngu hækkar estrógenmagn og helst tiltölulega stöðugt, sérstaklega eftir fyrsta þriðjung.

​

Þessi stöðugleiki getur dregið úr tíðni mígreniskasta, einkum hjá konum sem eru með mígreni án áru og finna venjulega fyrir köstum í tengslum við tíðablæðingar.

​

Á fyrsta þriðjungi geta hins vegar ógleði, uppköst, svefntruflanir, vökvaskortur og breytingar á matarvenjum haft áhrif á mígreni.

Studio photography of a person holding a home pregnancy test. The lighting is soft and intimate, capturing a moment of anticipation.

Hvernig þróast mígreni á meðgöngu?

  • Fyrsti þriðjungur: Mígreni getur haldist óbreytt eða versnað hjá sumum konum. Aðrar finna fyrir bata strax á fyrstu vikum meðgöngu.

  • Annar og þriðji þriðjungur: Hjá mörgum dregur verulega úr mígrenisköstum og sumar verða tímabundið einkennalausar.

  • Eftir fæðingu: Hröð lækkun estrógens, svefnleysi og líkamlegt álag geta stuðlað að því að mígreni komi aftur.

​

Mígreni með áru getur þróast öðruvísi en mígreni án áru. Konur með áru eru síður líklegar til að finan fyrir bata og sumar upplifa jafnvel áru í fyrsta sinn á meðgöngu. Ný taugaeinkenni á meðgöngu þarf þó alltaf að meta læknisfræðilega.

Meðferð mígrenis á meðgöngu

Studio photography of a partial pill blister pack containing a mix of white and pink tablets, set against a soft solid pink background.

Meðferð þarf að taka mið af heilsu móður, meðgöngulengd og öryggi barnsins. Mikilvægt er að endurskoða mígrenilyf með lækni áður en meðganga hefst eða um leið og þungun er staðfest.

Lyfjameðferð

​

  • Parasetamól er almennt fyrsta val við verkjum á meðgöngu og skal nota samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks.

  • Súmatriptan getur komið til greina við erfiðum mígrenisköstum, að undangengnu einstaklingsbundnu mati læknis.

  • Metóklópramíð getur hjálpað við ógleði og þrálátum höfuðverk.

  • Íbúprófen og önnur bólgueyðandi verkjalyf ætti ekki að nota nema samkvæmt læknisráði. Notkun þeirra er háð meðgöngulengd.

  • Sum fyrirbyggjandi mígrenilyf, meðal annars valpróat og tópíramat, geta verið skaðleg fóstri. Ekki er mælt með CGRP-mótefnum á meðgöngu vegna ófullnægjandi öryggisupplýsinga.

​

Konur ættu hvorki að hefja né hætta ávísuðum lyfjum án samráðs við lækni.

Pregnant Woman Meditating

Hvað getur hjálpað án lyfja?

Reglulegur svefn, nægileg vökvainntaka, reglulegar máltíðir og hæfileg hreyfing geta hjálpað við að draga úr álagi sem tengist mígreni.

​

Einnig geta slökunaraðferðir, streitustjórnun og aðlögun daglegra venja verið gagnlegar. Á meðgöngu getur verið sérstaklega mikilvægt að huga að nægilegri hvíld og næringu, meðal annars ef ógleði og uppköst hafa áhrif á mataræði og vökvainntöku.

​

Mígrenisdagbók getur einnig verið gagnleg. Þar má skrá tíðni kasta, einkenni, mögulega áhrifaþætti og árangur meðferðar. Þannig verður auðveldara að skipuleggja meðferð í samráði við heilbrigðisstarfsfólk.

Mígreni og fæðing

Baby Held Gently

Mígreni hefur yfirleitt ekki áhrif á möguleika kvenna til að fæða um leggöng og er sjúkdómurinn sjálfur ekki ástæða fyrir keisaraskurði.

​

Hjá konum með alvarlegt eða langvinnt mígreni getur verið gagnlegt að ræða fyrirfram við ljósmóður eða lækni um verkjameðferð, hvíld og aðrar þarfir í fæðingu.

​

Svefnleysi, vökvaskortur og líkamlegt álag geta haft áhrif á mígreni. Góð meðferðaráætlun getur því verið gagnleg bæði í fæðingu og fyrstu dagana eftir hana.

Hvenær þarf að leita læknis?

Ekki má gera ráð fyrir að allur höfuðverkur á meðgöngu sé mígreni.

​

Leita þarf tafarlaust læknismats ef höfuðverkur er skyndilegur og mjög ákafur, óvenjulegur eða fylgir sjóntruflunum, máttleysi, tal erfiðleikum eða hækkuðum blóðþrýstingi.

​

Eftir 20. viku meðgöngu getur þrálátur höfuðverkur, sérstaklega með sjóntruflunum, bólgu eða verkjum ofarlega í kvið, verið einkenni meðgöngueitrunar. Slík einkenni geta einnig komið fram eftir fæðingu.

a doctor is talking to a pregnant woman in a hospital bed

Mígreni eftir fæðingu og við brjóstagjöf

Image by Omar Lopez

Mígreni getur komið aftur fljótlega eftir fæðingu, jafnvel hjá konum sem voru nánast einkennalausar á meðgöngu.

​

Hormónabreytingar, svefnleysi, líkamlegt álag og óreglulegar máltíðir geta haft áhrif á mígreni á þessum tíma.

​

Brjóstagjöf útilokar ekki mígrenismeðferð. Ýmis lyf koma til greina, þar á meðal parasetamól og ákveðin triptanlyf. Lyfjaval þarf þó að miðast við aðstæður móður og barns.

Mígreni og fæðing

Meðganga á að vera tími þar sem konur fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu og stuðning. Konur með mígreni eiga rétt á að einkenni þeirra séu tekin alvarlega, hvort sem þau batna eða versna á meðgöngu. Þótt mígreni batni hjá mörgum konum á meðgöngu er það ekki raunin hjá öllum. Fyrir sumar getur sjúkdómurinn áfram haft veruleg áhrif á lífsgæði, daglega virkni og líðan.

​

Með fræðslu, einstaklingsmiðaðri meðferð og góðu samstarfi við ljósmæður og lækna er hægt að styðja konur með mígreni í gegnum meðgöngu, fæðingu og sængurlegu.

​

Mígreni er ekki bara höfuðverkur – heldur taugasjúkdómur sem þarf að taka tillit til á öllum æviskeiðum kvenna.

bottom of page