top of page

Mígreni og veðurfar

Getur veðrið kallað fram mígreniskast?

Margir sem glíma við mígreni kannast við að finna fyrir yfirvofandi mígreniskasti þegar veðrið breytist og fylgjast því náið með veðurfréttum. Áhrif veðurfars eru þó einstaklingsbundin. Það sem virðist kalla fram mígreni hjá einum einstaklingi hefur hugsanlega engin áhrif á annan.  Sumir upplifa aukna tíðni kasta þegar loftþrýstingur fellur og aðrir jafnvel þegar hitastig sveiflast. 

​

En hvað segja vísindin? Getur veðrið raunverulega haft áhrif á mígreni og hvers vegna virðast sumir vera mun viðkvæmari en aðrir fyrir veðurbreytingum?

​

Mígreni er taugasjúkdómur sem tengist meðal annars breyttri starfsemi taugakerfisins og auknu næmi fyrir ýmsum áreitum. Veðurfar er einn þeirra þátta sem fólk með mígreni nefnir gjarnan sem mögulega kveikju mígreniskasta.

​

Rannsóknir benda til þess að ákveðnir veðurþættir geti tengst aukinni tíðni kasta hjá sumum einstaklingum, en tengslin eru flókin og ekki að fullu skýrð 

Hvaða veðurþættir geta haft áhrif á mígreni?

1. Loftþrýstingsbreytingar

Breytingar á loftþrýstingi eru meðal þeirra veðurþátta sem hafa verið mest rannsakaðir í tengslum við mígreni. Sumir einstaklingar lýsa því að þeir finni fyrir mígreniseinkennum áður en lægð gengur yfir eða þegar loftþrýstingur breytist hratt.
Ekki er að fullu ljóst hvers vegna þetta gerist. Ein tilgátan er að loftþrýstingsbreytingar geti haft áhrif á sársaukaskynjun og starfsemi þeirra taugabrauta sem taka þátt í mígreni. Þessar skýringar hafa þó ekki verið staðfestar.
 

2. Hitastig og hitasveiflur

Mikill hiti, kuldi og skyndilegar hitabreytingar geta verið mögulegir áhrifaþættir mígrenis. Rannsóknir hafa sýnt tengsl milli hitastigs og tíðni mírgreniskasta, en niðurstöðurnar eru ekki alltaf samhljóma. 

Á heitum dögum getur vökvatap aukist, sérstaklega við líkamlega áreynslu. Vökvaskortur getur síðan aukið líkur á höfuðverk og hugsanlega stuðlað að mígreniskasti hjá viðkvæmum einstaklingum.
 

3. Birta og sólarljós

Ljósnæmi er eitt af algengustu einkennum mígrenis. Sterkt sólarljós, endurkast frá snjó eða vatni og snöggar breytingar á birtustigi geta valdið óþægindum og aukið einkenni.

Mikilvægt er þó að greina á milli ljósnæmis sem mígreniseinkenni og þess að birta sé raunveruleg kveikja mígreniskasts. Ljósnæmi getur til dæmis komið fram áður en höfuðverkur hefst og því verið eitt af fyrstu einkennum kastsins.

 

4. Raki, vindur og óveður

Sumir einstaklingar tengja mígrenisköst sín við mikinn raka, þurrt loft, hvassviðri eða skyndilegar veðurbreytingar.

Rannsóknir hafa þó ekki sýnt með óyggjandi hætti að þessir veðurþættir valdi mígrenisköstum. Niðurstöður eru mismunandi og erfitt getur verið að einangra áhrif einstakra veðurbreyta.

Hvað segja nýjustu rannsóknir?

Árið 2025 var birt safngreining á 31 rannsókn þar sem skoðuð voru tengsl veðurfars og mígrenis. Niðurstöðurnar sýndu tölfræðileg tengsl milli mígreniskasta og breytinga á hitastigi og loftþrýstingi. Ekki fundust hins vegar marktæk heildartengsl við rakastig.

​

Önnur kerfisbundin rannsóknaryfirlit sýna að lækkun eða hraðar sveiflur í loftþrýstingi geta tengst aukinni tíðni mígreniskasta hjá sumum einstaklingum. Ekki hefur þó verið sýnt fram á að loftþrýstingsbreytingar hafi áhrif á lengd kasta.

​

Í rannsókn sem birt var árið 2026 fundust tengsl meðal annars milli skráðra höfuðverkja og breytinga á loftþrýstingi, úrkomu, vindi og sólskini. Tengslin voru almennt fremur lítil og ekki hægt að fullyrða út frá rannsókninni að veðrið hafi valdið höfuðverkjum. 

​

Þessar rannsóknir styðja þá hugmynd að veðurfar geti verið áhrifaþáttur hjá sumum. Þær sýna þá einnig hversu flókið sambandið er og að frekari rannsókna sé þörf. 

Afhverju hafa veðurbreytingar meiri áhrif á suma en aðra ?

Það er ekki alveg ljóst hvers vegna sumir einstaklingar virðast viðkvæmari fyrir veðurbreytingum en aðrir. Mígreni er flókinn sjúkdómur þar sem margt getur haft áhrif. 

​

Ein möguleg skýring er að mígrenisköst verði vegna samspils margra þátta. Einstaklingur gæti til dæmis þolað veðurbreytingar vel þegar hann er úthvíldur, en verið viðkvæmari fyrir þeim þegar svefn hefur verið óreglulegur eða streita mikil. Þannig getur sami veðurþáttur haft mismunandi áhrif á sama einstakling eftir aðstæðum hverju sinni. 

Mígreni og íslenskt veðurfar

Á Íslandi geta veðurskilyrði breyst hratt og eru lægðir, hvassviðri, hitasveiflur og miklar árstíðabundnar breytingar á birtu einkennandi fyrir íslenskt veðurfar.

​

Því gæti verið áhugavert að rannsaka sérstaklega hérlendis hvort og hvernig íslenskt veðurfar tengist mígreni.

​

Ekki er þó hægt að fullyrða að Íslendingar séu í meiri hættu á veðurtengdum mígrenisköstum en íbúar annarra landa. Til þess þyrfti rannsóknir sem tækju mið af íslenskum veðurgögnum og mígreniseinkennum.

Hvað er hægt að gera?

Þrátt fyrir að geta ekki stjórnað veðrinu er ýmislegt hægt að gera til að draga úr öðrum áhrifaþáttum og undirbúa sig fyrir hugsanleg mígrenisköst.

  • Halda mígrenisdagbók: Skrá mígrenisköst, veðurskilyrði, einkenni, lyfjanotkun og mögulega áhrifaþætti. Skráning í tvo til þrjá mánuði getur hjálpað til við að greina hugsanlega áhrifaþætti.

    • Smella til að lesa nánar um mígrenisdagbók

  • Viðhalda reglulegum svefni: Reyna að fara að sofa og vakna á svipuðum tíma daglega.

  • Huga að vökvainntöku: Sérstaklega á heitum dögum eða við líkamlega áreynslu.

  • Draga úr ljósáreiti: Sólgleraugu og viðeigandi birtustillingar geta hjálpað þeim sem eru ljósnæmir.

  • Hafa meðferðaráætlun: Ræða við lækni um fyrirbyggjandi meðferð eða viðeigandi bráðalyf ef mígrenisköst eru tíð eða hamlandi.

Mígreni er ekki bara höfuðverkur

Fólk sem finnur fyrir auknum mígreniseinkennum í tengslum við veðurbreytingar getur upplifað að það hafi litla stjórn á sjúkdómnum. Þegar veðrið er óútreiknanlegt getur reynst erfitt að skipuleggja vinnu, félagslíf og fjölskyldustundir.

​

Aukinn skilningur á mögulegum tengslum mígrenis og veðurfars getur stuðlað að betri fræðslu, markvissari meðferð og aukinni vitund samfélagsins um sjúkdóminn. 

Mikilvægt að muna

Veðrið getur verið einn af mörgum áhrifaþáttum mígrenis. Einstaklingur getur fundið fyrir skýrum tengslum milli veðurbreytinga og mígreniskasta þótt vísindin hafi ekki enn geta útskýrt þessi tengsl að fullu.

​

Mígreni er taugasjúkdómur, ekki afleiðing þess að einstaklingur hafi ekki tekist að forðast ákveðnar kveikjur. Það er því ekki á ábyrgð fólks með mígreni að koma í veg fyrir öll köst með því að stjórna umhverfi sínu eða daglegum venjum. 

bottom of page