top of page

Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti af ævi kvenna en getur haft veruleg áhrif á þær sem glíma við mígreni. Hormónasveiflur, svefntruflanir, hitakóf og breytingar á líðan geta haft áhrif á tíðni og alvarleika mígreniskasta. Hjá sumum konum versnar mígrenið á þessu tímabili, á meðan aðrar finna fyrir litlum breytingum eða jafnvel bata.

​

Mikilvægt er að konur þekki tengslin á milli mígrenis og breytingaskeiðsins, því með aukinni þekkingu, réttri greiningu og einstaklingsmiðaðri meðferð er oft hægt að draga úr einkennum og bæta lífsgæði.

 

​

Breytingaskeiðið er tímabil hormónabreytinga sem leiðir að tíðahvörfum. Það hefst oft á fimmtugsaldri en getur byrjað fyrr.

Á þessu tímabili verður starfsemi eggjastokka óreglulegri og styrkur kynhormóna, einkum estrógens, sveiflast. Þessar sveiflur geta haft áhrif á ýmis líffærakerfi, þar á meðal taugakerfið.

 

Algeng einkenni breytingaskeiðsins eru meðal annars:

  • Óreglulegar tíðablæðingar.

  • Hitakóf og nætursviti.

  • Svefntruflanir og aukin þreyta.

  • Skapbreytingar og einbeitingarerfiðleikar.

  • Höfuðverkur eða breytingar á áður þekktu mígreni.

Konur sem hafa áður fengið tíðatengt mígreni geta verið sérstaklega næmar fyrir hormónasveiflum á þessu tímabili.

Studio photography of a smiling, silver-haired woman wearing a lavender shirt and glasses perched on her head. The light is soft and bright, creating an optimistic and approachable mood.

Breytingaskeið og mígreni

áhrif á taugakerfið

Hvað gerist á breytingaskeiðinu?

– þegar hormónin hafa

Hvers vegna getur mígreni versnað?

Studio photography of a middle-aged woman in a white blouse looking stressed with her hands on her head. The mood is solemn and reflective.

Estrógen hefur áhrif á starfsemi heilans og þau taugaboðkerfi sem tengjast mígreni.

Það er einkum talið vera sveiflur í estrógeni, sérstaklega þegar styrkur þess lækkar, sem geta stuðlað að mígrenisköstum hjá konum sem eru næmar fyrir hormónabreytingum.

​

Á breytingaskeiði geta þessar sveiflur orðið bæði meiri og ófyrirsjáanlegri en áður. Það getur leitt til þess að mígrenisköst verða tíðari, langvinnari eða erfiðari viðureignar.

​

Hormónabreytingarnar eru þó ekki eini áhrifaþátturinn. Svefnleysi vegna nætursvita, aukið álag og breytingar á daglegum venjum geta einnig haft áhrif á mígrenið.

​

Því er mikilvægt að horfa á heildarmyndina fremur en að einblína eingöngu á hormónabreytingar.

Hvað gerist eftir tíðahvörf?

Tíðahvörf eru skilgreind þegar 12 mánuðir hafa liðið frá síðustu náttúrulegu tíðablæðingum.

​

Eftir tíðahvörf verða hormónasveiflur yfirleitt minni. Hjá mörgum konum leiðir það til þess að mígrenisköstum fækkar og þau verða vægari.

​

Það á þó ekki við um allar konur. Sumar halda áfram að glíma við mígreni og aðrar finna ekki fyrir neinum verulegum breytingum.

​

Einnig skiptir máli hvort tíðahvörf verða náttúrulega eða í kjölfar skurðaðgerðar þar sem báðir eggjastokkar eru fjarlægðir. Skyndileg lækkun estrógens eftir slíka aðgerð getur valdið versnun mígrenis.

Studio photography of a mature woman in a blazer dabbing her cheek with a cloth. The mood is somber and reflective.

Hormónameðferð
og mígreni

Studio photography of white and pink pills arranged to form a smiling face on a soft pink background. Playful, clean, and optimistic vibe.

Hormónameðferð getur dregið úr einkennum breytingaskeiðsins, svo sem hitakófum og nætursvita. Áhrif hennar á mígreni eru hins vegar einstaklingsbundin.

​

Hjá sumum konum getur hormónameðferð stuðlað að stöðugri hormónastyrk og dregið úr mígreni. Hjá öðrum getur hún aukið tíðni kasta og enn öðrum haft lítil áhrif.

​

Þegar hormónameðferð er talin viðeigandi eru estrógen plástrar eða estrogengel oft ákjósanlegri en estrógentöflur hjá konum með mígreni. Með því að gefa estrógen í gegnum húð er hægt að ná jafnari hormónastyrk.

Hvað með konur sem fá mígreni með áru?

Nature photography showing sunlight filtering through tree canopy leaves. Bright sun flares create a warm, ethereal atmosphere.

Mígreni með áru tengist aukinni hættu á blóðþurrðarslagi. Því þarf að taka sérstaklega tillit til áhættuþátta þegar hormónameðferð er ákveðin.

​

Mikilvægt er að greina á milli samsettra hormónagetnaðarvarna og hormónameðferðar við tíðahvörfum. Þetta eru ekki sömu meðferðirnar og áhættan er mismunandi.

​

Mígreni með áru útilokar ekki sjálfkrafa hormónameðferð við tíðahvörfum. Meta þarf meðal annars aldur, blóðþrýsting, reykingar, aðra áhættuþætti og hvaða lyfjaform hentar.

​

Alþjóðlegar leiðbeiningar mæla almennt frekar með estrógeni um húð en töflum þegar hormónameðferð er notuð hjá konum með mígreni.

​

Hormónameðferð á fyrst og fremst að beinast að einkennum breytingaskeiðsins en er ekki sjálfstæð grunnmeðferð við mígreni.

Studio photography of two smiling, professional women standing side-by-side against a white wooden paneled wall. The mood is confident, bright, and friendly.

Hvernig er hægt að draga úr mígreni á breytingaskeiði?

Mikilvægt er að endurmeta mígrenismeðferð þegar hormónabreytingar hafa áhrif á tíðni eða alvarleika kasta.

​

Meðferð getur meðal annars falist í eftirfarandi:

​

1. Fyrirbyggjandi mígrenismeðferð

Konur sem fá tíð eða hamlandi mígrenisköst geta þurft fyrirbyggjandi meðferð. Til greina koma meðal annars hefðbundin fyrirbyggjandi lyf, CGRP-miðuð meðferð og Botox við langvinnu mígreni þegar viðeigandi skilyrði eru uppfyllt.

​

2. Meðferð við mígrenisköstum

Mikilvægt er að hafa aðgang að viðeigandi bráðameðferð, svo sem lyf í flokki triptana (imigran, rizatriptan osfrv) eða öðrum mígreni lyfjum.

Lyfjaval fer eftir heilsufari, einkennum og öðrum áhættuþáttum.

Einnig þarf að gæta þess að nota ekki bráðalyf of oft, þar sem það getur stuðlað að höfuðverk vegna ofnotkunar lyfja.

​

3. Bættur svefn og meðferð við einkennum breytingaskeiðsins

Hitakóf, nætursviti og svefntruflanir geta aukið álag á konur sem þegar glíma við mígreni. Með því að meðhöndla þessi einkenni má hugsanlega draga úr þáttum sem stuðla að mígrenisköstum.

​

4. Höfuðverkjadagbók

Höfuðverkjadagbók er gagnlegt verkfæri til að fylgjast með breytingum á mígreni.

​

Skrá má tíðni og lengd kasta, lyfjanotkun, svefn, tíðablæðingar, hitakóf og önnur einkenni breytingaskeiðsins. Þannig er auðveldara að átta sig á hugsanlegum tengslum og meta árangur

Breytingaskeiðið getur haft veruleg áhrif á mígreni, en með aukinni þekkingu, viðeigandi meðferð og góðri eftirfylgd er oft hægt að bæta lífsgæði.

​

Mígrenissamtökin vilja stuðla að aukinni fræðslu, skilningi og betri heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með mígreni á öllum æviskeiðum.

Hvenær ætti að leita aðstoðar?

Studio photography of a doctor in a white coat filling out a clipboard with a pen. The scene suggests a professional and focused healthcare setting.

Ef mígreni breytist verulega á breytingaskeiði er mikilvægt að ræða það við lækni. Sérstaklega á það við ef köstum fjölgar, þau verða hamlandi eða fyrri meðferð skilar ekki lengur nægilegum árangri.

​

Nýr eða verulega breyttur höfuðverkur á miðjum aldri þarf einnig læknisfræðilegt mat. Skyndilegur, óvenju mikill höfuðverkur eða ný taugaeinkenni geta kallað á tafarlausa læknisaðstoð.

​

Samvinna heilsugæslu, kvensjúkdómalækna og taugalækna getur verið mikilvæg þegar bæði einkenni breytingaskeiðsins og mígreni krefjast meðferðar.

Konur eiga ekki að þurfa að sætta sig við versnandi mígreni

Breytingaskeiðið getur verið krefjandi fyrir konur sem glíma við mígreni. Hormónasveiflur og önnur einkenni geta haft áhrif á vinnu, fjölskyldulíf, félagslega þátttöku og almenna líðan.

​

Það er mikilvægt að einkenni kvenna séu tekin alvarlega og að þær fái viðeigandi fræðslu, greiningu og meðferð.

 

Aukin þekking á tengslum hormóna og mígrenis getur hjálpað konum að skilja breytingar á sjúkdómnum og auðveldað heilbrigðisstarfsfólki að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.

Mígreni er ekki bara höfuðverkur

bottom of page