Skráðu þig Í Mígrenissamtökin
Með félagsaðild í Mígrenissamtökunum getur þú haft bein áhrif og styrkt rödd þeirra sem glíma við mígreni. Félagsgjöldin styðja við starfsemi og uppbyggingu samtakanna og gera okkur kleift að efla fræðslu, vekja athygli á sjúkdómnum og vinna að jákvæðum breytingum.
Árlegt félagsgjald Mígrenissamtakanna er 2.500 kr. Gjaldatímabilið er frá 1. apríl til 31. mars ár hvert og eru félagsgjöld innheimt árlega með gjalddaga 1. apríl.
Við nýskráningu miðast félagsgjaldið við þann tíma sem eftir er af yfirstandandi gjaldatímabili:
- 1. apríl til 30. september: Fullt félagsgjald, 2.500 kr.
- 1. október til 31. mars: Hálft félagsgjald, 1.250 kr.
Við skráningu í Mígrenissamtökin stofnast greiðslukrafa í heimabanka fyrir félagsgjaldi. Þegar greiðsla hefur borist telst viðkomandi fullgildur félagsmaður í Mígrenissamtökunum.
árgjald 2500kr
Skráðu þig hér til hliðar og þú færð sendan reikning í heimabanka.

Sem félagsmaður getur þú:
-
Verið hluti af samfélagi fólks sem þekkir áhrif mígrenis af eigin reynslu.
-
Fengið fræðslu um mígreni, meðferðir og nýjustu rannsóknir.
-
Tekið þátt í viðburðum og öðru félagsstarfi.
-
Haft áhrif á áherslur og framtíðarstarf samtakanna.
-
Stutt hagsmunabaráttu fyrir bættri þjónustu og auknum skilningi á mígreni.
Þú þarft ekki sjálf/ur/t að vera með mígreni til að gerast félagi. Aðstandendur og allir þeim sem vilja styrkja málefnið eru velkomnir.
Félagsaðild er ekki aðeins stuðningur við samtökin – hún er þátttaka í að skapa betri framtíð fyrir fólk með mígreni.
