
Mígrenisdagbókin
– mikilvægt verkfæri til aukins skilnings
Mígreni er flókinn taugasjúkdómur sem getur birst á ólíkan hátt eftir einstaklingum. Köstin geta verið mismunandi að styrk og lengd og einkennin ná oft langt út fyrir höfuðverkinn sjálfan. Mígrenisdagbók getur hjálpað til að öðlast betri yfirsýn yfir sjúkdóminn, greina möguleg mynstur og meta árangur meðferðar.
Dagbókin getur jafnframt auðveldað samtal við lækni eða annað heilbrigðisstarfsfólk. Það er oft erfitt að muna nákvæmlega hversu mörg köst hafa komið síðustu vikur eða mánuði, hversu lengi þau vörðu og hvort lyfin virkuðu. Regluleg skráning gefur skýrari upplýsingar, getur stutt við greiningu og ákvarðanir um meðferð.
Hvað er gagnlegt að skrá?

Gott er að skrá bæði mígrenisdaga og aðra höfuðverkjadaga. Með tímanum fæst þannig betri yfirsýn yfir tíðni, lengd og alvarleika kastanna.
Meðal þess sem gagnlegt getur verið að skrá er:
-
Dagsetning og tímasetning kasts
-
Hversu lengi kastið varði
-
Styrkur og staðsetning verkja
-
Hvort ára hafi komið
-
Ógleði, þreyta, svimi eða uppköst
-
Næmi fyrir ljósi, hljóði, lykt eða snertingu
-
Áhrif kastsins á vinnu, nám, svefn og daglegar athafnir
-
Hvort hægt hafi verið að sinna venjulegum verkefnum eða þörf hafi verið á hvíld
-
Önnur einkenni sem komu á undan eða eftir höfuðverknum
-
Mögulegir áhrifaþættir, t.d. Staðsetning í tíðahring, óreglulegar máltíðir, streita eða annað sem gæti haft áhrif.
Dagbókin getur einnig hjálpað við að þekkja fyrirboða og sýna hvort köstin fylgi ákveðnu mynstri. Best er þó að halda skráningunni eins einfaldri og mögulegt er svo hún nýtist til lengri tíma.
Skráning lyfja og meðferðar
Mikilvægt er að skrá hvaða bráðalyf voru tekin, hvenær þau voru tekin og hversu vel þau virkuðu.
Einnig er hægt að skrá:
-
Hvort þörf hafi verið á að taka annan skammt
-
Hversu fljótt lyfið fór að virka
-
Hvort einkennin hurfu að fullu eða aðeins að hluta
-
Hvort verkurinn kom aftur
-
Hvort aukaverkanir komu fram.
Þegar fyrirbyggjandi meðferð er hafin eða lyfjaskammti breytt getur dagbókin hjálpað til við að meta árangurinn. Meðferð getur verið gagnleg þótt mígrenisdögum fækki ekki mikið. Köstin geta til dæmis orðið vægari eða styttri, bráðalyfin virkað betur eða einstaklingurinn verið betur fær um að sinna daglegum verkefnum.
Einnig er mikilvægt að skrá hversu marga daga í mánuði bráðalyf eða verkjalyf eru notuð. Langvarandi og of tíð notkun ákveðinna lyfja við höfuðverk getur stuðlað að höfuðverk vegna lyfjaofnotkunar.

Svefn, vatnsdrykkja og mataræði

Óreglulegur svefn, langur tími án matar og ónóg vökvainntaka geta haft áhrif á mígreni hjá sumum. Því getur verið gagnlegt að skrá svefn, reglusemi máltíða og vatnsdrykkju, sérstaklega ef eitthvað var óvenjulegt þann daginn.
Ekki þarf þó að skrá nákvæmlega hvern munnbita eða hvert vatnsglas. Oft nægir að merkja við hvort máltíð hafi fallið niður, lítið hafi verið drukkið eða svefn verið óvenjulega stuttur eða óreglulegur.
Mikilvægt er að túlka möguleg tengsl við mat af varfærni. Löngun í ákveðinn mat getur til dæmis verið hluti af fyrirboða fasa mígrenis fremur en orsök kastsins. Matarlöngun, geispar, þreyta, einbeitingarerfiðleikar og breytingar á skapi geta komið fram áður en höfuðverkurinn hefst.
Veðurfar og mígreni
Sumir upplifa að veðurbreytingar hafi áhrif á mígrenið. Þar geta komið við sögu breytingar á loftþrýstingi, hitastigi, raka, vindi eða birtu. Því getur verið gagnlegt að skrá veðurfar samhliða köstum ef grunur er um slík tengsl.
Eitt kast á stormasömum degi sannar þó ekki að veðrið hafi valdið því. Skoða þarf skráninguna yfir lengri tíma og hafa í huga að fleiri þættir geta spilað saman, til dæmis svefnleysi, streita, hormónabreytingar og óreglulegar máltíðir. Rannsóknir og dagbókargögn sýna að mögulegir áhrifaþættir eru fjölbreyttir og einstaklingsbundnir.
Við getum ekki stjórnað veðrinu, en ef ákveðið mynstur kemur í ljós má hins vegar stundum undirbúa sig betur - til dæmis með því að hafa bráðalyf tiltæk og huga vel að svefni, næringu og vökvainntöku.

Mynstur er ekki alltaf orsök

Þegar dagbókin er skoðuð getur verið freistandi að leita að einni skýrri orsök fyrir hverju kasti. Mígreni verður þó oft vegna samspils margra þátta og stundum kemur kast án þess að augljós skýring finnist.
Sum einkenni sem virðast í fyrstu vera kveikjur geta einnig verið fyrstu merki þess að kast sé þegar hafið. Því er mikilvægt að túlka dagbókina með varúð og forðast að útiloka matvæli, hreyfingu eða daglegar athafnir að óþörfu.
Dagbókin sýnir möguleg tengsl en sannar ekki endilega orsakasamband.
Mígrenisdagbókin á að vera hjálpartæki en ekki íþyngjandi verkefni. Hún á ekki að leiða til þess að einstaklingurinn fylgist stöðugt með líkamanum, óttist mögulegar kveikjur eða finni fyrir sektarkennd þegar kast kemur.
Fyrir marga nægir einföld dagleg skráning sem tekur aðeins eina til tvær mínútur. Ef skráningin verður kvíðavaldandi má einfalda hana og leggja áherslu á fjögur meginatriði:
-
Fjölda höfuðverkja- og mígrenisdaga.
-
Styrk og áhrif einkenna.
-
Lyfjanotkun og virkni lyfja.
-
Áhrif kastanna á daglegt líf.
Ekki þarf að skrá allt, alla daga. Einföld dagbók sem er raunhæft að halda til lengri tíma gefur oft betri upplýsingar en mjög ítarleg skráning sem verður fljótt of íþyngjandi.
Í dag eru til fjölmörg smáforrit (öpp) sem auðvelda skráningu mígreniskasta og einkenna. Mörg þeirra bjóða upp á yfirlit og myndræna framsetningu sem getur hjálpað til við að greina mynstur, fylgjast með breytingum yfir tíma og meta árangur meðferðar. Slík öpp geta því oft auðveldað manni þessar skráningar.

Að finna jafnvægi í skráningunni
Við getum ekki haft stjórn á öllu
Við getum að einhverju leyti haft áhrif á svefnvenjur, reglusemi máltíða, vökvainntöku, hreyfingu og rétta lyfjanotkun. Öðru eins og veðri, hormónabreytingum og næmni taugakerfisins, getum við hinsvegar lítið eða ekkert stjórnað.
Aldrei er hægt að tryggja að mígreniskast komi ekki, jafnvel þótt einstaklingurinn fylgi öllum ráðleggingum. Kast þýðir því ekki að viðkomandi hafi gert eitthvað „rangt“ eða ekki staðið sig nægilega vel.
Markmið mígrenisdagbókarinnar er ekki að ná fullkominni stjórn á sjúkdómnum eða finna sökudólg fyrir hvert kast. Hún á að auka skilning, styðja við markvissari meðferð og auðvelda samtal við heilbrigðisstarfsfólk – án kvíða eða sektarkenndar.
-
European Medicines Agency: New measures to avoid topiramate exposure in pregnancy
-
International Headache Society: 8.2 Medication-overuse headache (MOH) (ICHD-3)
-
American Migraine Foundation: Managing your migraine with headache hygiene
-
National Institute of Neurological Disorders and Stroke: Migraine
-
World Health Organization: Migraine and other headache disorders
