
Lyf við mígreni
– hvaða meðferðir eru í boði og hvernig virka þær?
Þótt höfuðverkur sé eitt helsta einkenni mígrenis þá fylgja oft önnur einkenni með, svo sem ógleði, ljósnæmi og aðrar skyntruflanir. Til eru ýmis lyf sem geta hjálpað, en virkni þeirra er talsvert ólík. Sum þeirra eru notuð til að stöðva mígrenisköst þegar þau koma fram en önnur eru tekin reglulega til að draga úr tíðni og alvarleika kasta. Að auki eru ýmis lyf notuð til stuðningsmeðferðar vegna þeirra fjölmörgu einkenna sem mígreni getur valdið.
Lyfjameðferð við mígreni skiptist því að mestu í tvo flokka: Bráðameðferð og fyrirbyggjandi meðferð.

Lyf við mígrenisköstum
-bráðameðferð
Þau lyf sem eru tekin þegar mígreniskast byrjar má kalla bráðalyf, eða lyf með skammtímavirkni. Markmiðið með notkun þeirra er að lina einkennin eins fljótt og hægt er. Oft skilar meðferðin bestum árangri ef hún er hafin snemma í kastinu, áður en það nær fullum þunga.
Almenn verkjalyf
Við vægum eða miðlungs alvarlegum mígrenisköstum geta almenn verkjalyf, svo sem parasetamól (Panodil), íbúprófen (Íbúfen) og naproxen, gagnast sumum vel.
Parasetamól hefur áhrif á verkjaskynjun í taugakerfinu en íbúprófen og naproxen tilheyra flokki bólgueyðandi verkjalyfja (NSAID). Þau draga úr myndun efna sem taka þátt í verkja- og bólguferlum líkamans.
Þótt þessi lyf fáist sum án lyfseðils eru þau ekki hættulaus. Of mikil notkun parasetamóls getur m.a. valdið lifraskaða og bólgueyðandi lyf geta haft slæm áhrif á meltingu og nýrnastarfsemi séu þau tekin í óhófi. Tíð notkun verkjalyfja getur einnig aukið hættu á lyfjaofnotkunarhöfuðverk.
Triptan-lyf
Triptan-lyf eru sérstaklega ætluð til að meðhöndla mígrenisköst. Dæmi um þau eru súmatriptan (Imigran), rísatriptan, almotriptan (Almogran) og eletriptan (Relpax).
Þessi lyf hafa áhrif á ákveðna serótónínviðtaka í taugakerfinu. Við það minnka verkjaboð og losun efna sem taka þátt í mígreniskastinu. Þau valda æðasamdrætti sem lina einkenni hjá ákveðnum hópi fólks með mígreni.
Triptan-lyf geta verið mjög áhrifarík, sérstaklega þegar þau eru tekin snemma í kastinu. Þau eru fáanlega í mismunandi lyfjaformum, meðal annars sem töflur, nefúðar og stungulyf, eftir því hvaða lyf er um að ræða. Þau henta þó ekki öllum, meðal annars vegna áhrifa þeirra á æðakerfið. Einstaklingar með hjarta- og æðasjúkdóma hafa því ekki alltaf kost á þessum lyfjum.
Gepantar
Gepantar eru nýrri flokkur mígrenilyfja sem hafa áhrif á CGRP-boðleiðina. CGRP (calcitonin gene-related peptide) er taugaboðefni sem gegnir mikilvægu hlutverki í mígreni og tekur þátt í að virkja verkjabrautir taugakerfisins.
Gepantar hindra bindingu CGRP við viðtaka þess og draga þannig úr virkni verkjabrauta sem tengjast mígreni. Rimegepant (Vydura) er dæmi um gepant sem hægt er að nota við mígrenisköstum. Lyfið er einnig notað sem fyrirbyggjandi meðferð.
Ólíkt triptan-lyfjum valda gepantar ekki æðasamdrætti með sama hætti. Þeir geta því verið meðferðarkostur fyrir einstaklinga sem geta ekki notað triptan-lyf eða hafa ekki fengið nægilega góða verkun af þeim.
Ógleði og uppköst eru algeng einkenni mígreniskasta og geta haft veruleg áhrif á líðan. Við mígrenisköst getur einnig hægt á magatæmingu, sem getur haft áhrif á frásog lyfja sem tekin eru um munn.
Ógleðilyf, svo sem afipran, geta dregið úr ógleði og uppköstum og eru stundum notuð samhliða öðrum bráðalyfjum við mígreni.
Þegar uppköst eru mikil eða erfitt reynist að taka lyf um munn geta önnur lyfjaform, til dæmis nefúðar eða stungulyf, komið til greina.
Ógleðilyf


Fyrirbyggjandi lyf við mígreni
Þegar mígreniköst eru tíð eða hafa veruleg áhrif á daglegt líf getur fyrirbyggjandi lyfjameðferð komið til greina, ýmist til þess að fækka mígrenisdögum eða draga úr alvarleika kasta. Meðferðin getur einnig dregið úr þörf fyrir bráðalyf.
Fyrirbyggjandi lyf eru yfirleitt notuð reglulega, óháð því hvort mígreniskast sé til staðar. Árangur getur verið einstaklingsbundinn og stundum þarf að prófa fleiri en eins meðferð áður en viðunandi árangur næst.
Blóðþrýstingslyf
Ákveðin lyf sem upphaflega voru þróuð við háþrýstingi geta einnig gagnast við að fyrirbyggja mígreni. Þar má nefna beta-blokka, svo sem metóprólól (Seloken) og própranólól og agíótensín II blokka á borð við kandesartan (Candpress).
Ekki er að fullu ljóst hvers vegna þessi lyf fyrirbyggja mígreni, en talið er að þau hafi áhrif á starfsemi taugakerfisins og stjórnun taugaboða.
Mögulegar aukaverkanir eru meðal annars þreyta, svimi og lækkun á blóðþrýstingi. Beta-blokkar geta einnig hægt á hjartslætti og henta ekki öllum, til dæmis einstaklingum með ákveðna hjarta- eða öndunarfærasjúkdóma.
Flogaveikilyf
Tópíramat er lyf sem upphaflega var þróað við flogaveiki en hefur einnig fyrirbyggjandi áhrif á mígreni. Það hefur áhrif á boðskipti taugafrumna og getur dregið úr óhóflegri örvun í taugakerfinu.
Aukaverkanir tópíramats geta verið hamlandi, en það er afar einstaklingsbundið hvort og hversu miklum aukaverkunum það veldur. Mögulegar aukaverkanir eru m.a. náladofi, einbeitingarerfiðleikar, erfiðleikar við að finna orð og mynda heilar setningar, skjálfti og fleira.
Tópíramat getur einnig valdið fósturskaða. Vegna þess gilda strangar takmarkanir um notkun þess á meðgöngu og sérstakar varúðarráðstafanir hjá einstaklingum sem geta orðið þungaðir.

Þunglyndislyf
Sum þunglyndislyf, sérstaklega amitriptýlín, geta gagnast við mígreni jafnvel þó einstaklingurinn sé ekki með þunglyndi. Amitriptýlín hefur áhrif á boðefni í heilanum sem taka þátt í stjórnun sársaukaboða. Lyfið getur einnig hjálpað sumum sem glíma við svefnvandamál samhliða mígreni.
CGRP-blokkar – sérhæfð mígrenismeðferð
Ein mesta framþróun síðustu ára í meðferð mígrenis er tilkoma CGRP-blokka, en þessi lyf voru sérstaklega þróuð til að meðhöndla mígreni.
CGRP er taugaboðefni sem tekur þátt í verkjaboðum og öðrum ferlum sem tengjast mígreni. Með því að hindra virkni þess geta CGRP-lyf dregið úr tíðni mígreniskasta og alvarleika þeirra. Þau þolast oft vel, þótt aukaverkanir geti komið fram.
CGRP-lyfjum má skipta í tvo meginflokka:
Einstofna mótefni gegn CGRP eða viðtaka þess
Þessi lyf eru gefin með sprautu undir húð eða sem innrennsli í æð.
-
Erenumab (Aimovig) : Gefið undir húð á 4 vikna fresti.
-
Fremanezumab (Ajovy) : Gefið undir húð mánaðarlega eða árfjórðungslega.
-
Eptinezumab (Vyepti) : Gefið sem innrennsli í æð á 12 vikna fresti.
Gepantar
Þau eru tekin um munn og geta, eftir því hvaða lyf á í hlut, verið notuð við bráðri meðferð eða til að fyrirbyggja mígrenisköst.
-
Rimegepant (Vydura) : Notað bæði sem bráðameðferð og fyrirbyggjandi.
-
Atogepant (Aquipta): Notað sem fyrirbyggjandi meðferð og tekið daglega.
Ólíkt triptan-lyfjum valda CGRP-blokkar ekki samdrætti í æðum með sama hætti. Þau geta því verið góður kostur fyrir einstaklinga sem ekki geta notað triptan-lyf.
Botox við langvinnu mígreni
Botox er ekki eingöngu notað í fegrunarskyni. Það er einnig viðurkennd fyrirbyggjandi meðferð við langvinnu mígreni. Langvinnt mígreni felur í sér höfuðverk að minnsta kosti 15 daga í mánuði í meira en þrjá mánuði, þar af að minnsta kosti átta daga með mígreniseinkennum. Við meðferðina er Botox sprautað á ákveðna staði í höfuð og háls, yfirleitt á 8-12 vikna fresti.
Ofnotkun lyfja

Tíð notkun lyfja við mígrenisköstum getur hjá sumum einstaklingum stuðlað að aukinni tíðni höfuðverkja og þróun svokallaðs lyfjaofnotkunarhöfuðverkjar.
Samkvæmt alþjóðlegum greiningarviðmiðum er lyfjaofnotkunarhöfuðverkur skilgreindur sem höfuðverkur að minnsta kosti 15 daga í mánuði hjá einstaklingi með undirliggjandi höfuðverkjasjúkdóm, samhliða reglulegri ofnotkun bráðalyfja í meira en þrjá mánuði.
Viðmiðin fyrir ofnotkun eru mismunandi eftir lyfjaflokkum:
-
Triptan-lyf: 10 daga eða oftar í mánuði.
-
Samsett verkjalyf: 10 daga eða oftar í mánuði.
-
Parasetamól og bólgueyðandi verkjalyf: 15 daga eða oftar í mánuði.
Þessi viðmið þýða ekki að allir sem nota lyf svo oft þrói með sér lyfjaofnotkunarhöfuðverk. Þau eru hins vegar mikilvæg við mat á áhættu. Einnig getur samanlögð notkun mismunandi flokka bráðalyfja skipt máli.
Þegar þörf er á bráðalyfjum marga daga í mánuði getur verið ástæða til að endurmeta meðferðina og skoða möguleika á fyrirbyggjandi lyfjameðferð.

Hvaða lyf hentar best?
Það er ekkert eitt lyf sem hentar öllum með mígreni. Meðferð sem virkar vel fyrir einn einstakling getur haft lítil áhrif hjá öðrum. Val á lyfjameðferð fer meðal annars eftir tíðni mígreniskasta, alvarleika einkenna, öðrum sjúkdómum og því hvernig einstaklingurinn hefur svarað fyrri meðferðum.
Stundum þarf að prófa fleiri en eina meðferð áður en sú rétta finnst. Einnig getur verið þörf á að aðlaga meðferðina með tímanum, sérstaklega ef einkenni eða tíðni mígreniskasta breytist.
Mikilvægast er að vita að mígreni er hægt að meðhöndla og að fjölbreyttir meðferðarmöguleikar eru í boði.
mígrenisköstum, draga úr einkennum og bæta lífsgæði verulega.
Með réttri meðferð er oft hægt að fækka
