top of page

Mígreni er langvinnur taugasjúkdómur sem einkennist af endurteknum köstum og getur haft áhrif á mun meira en höfuðið. Höfuðverkur er algengt einkenni mígrenis, en sjúkdómurinn getur einnig valdið ógleði, ljós- og hljóðnæmi, sjóntruflunum, svima, þreytu, einbeitingarerfiðleikum og ýmsum öðrum einkennum.

 

Mígreni er því ekki „bara höfuðverkur“.

 

Mígreni getur haft veruleg áhrif á daglegt líf, vinnu, nám, fjölskyldulíf og félagslega þátttöku. Á milli kasta geta sumir verið einkennalausir en aðrir finna áfram fyrir einkennum eða óvissu um hvenær næsta kast hefst.

Hvað er mígreni?

Studio photography of a young woman experiencing stress or a headache while working at her desk. The lighting highlights her focused, overwhelmed expression in a simple office environment.

Mígreni er ósýnilegur sjúkdómur

Eitt af því sem getur gert mígreni sérstaklega erfitt er að sjúkdómurinn sést yfirleitt ekki utan á fólki. Mígreni er því einn þeirra ósýnilegu sjúkdóma sem geta mætt þekkingar- og skilningsleysi í samfélaginu.

Einstaklingur getur litið fullkomlega heilbrigður út en á sama tíma verið með mikinn verk, ógleði, sjóntruflanir, svima, næmi fyrir ljósi, hljóði eða lykt og átt erfitt með að vera innan um fólk.

 

Fólk með mígreni þarf skilning, þekkingu og samfélag sem tekur sjúkdóminn alvarlega. Mígreni er ekki bara höfuðverkur sem hverfur ef viðkomandi drekkur meira vatn, tekur verkjatöflu eða fer í göngutúr.

Með réttri greiningu, viðeigandi meðferð, fræðslu og stuðningi er oft hægt að ná mun betri stjórn á sjúkdómnum.

Studio photography of a young woman experiencing stress or a headache while working at her desk. The lighting highlights her focused, overwhelmed expression in a simple office environment.
pexels-nicola-barts-7927362 Large.jpeg

Hvað gerist í mígreniskasti?

Mígreni er líffræðilegur taugasjúkdómur. Hann er ekki merki um veikleika, lágan sársaukaþröskuld eða að einstaklingur ráði illa við streitu.

Í mígrenikasti eiga sér stað flóknar breytingar í starfsemi heilans og taugakerfisins. Meðal annars kemur þríburataugakerfið (trigeminal system) við sögu og boðefnið CGRP (calcitonin gene-related peptide) gegnir mikilvægu hlutverki í meingerð mígrenis.

​

Þessar breytingar geta haft áhrif á það hvernig heilinn vinnur úr sársauka og skynáreitum. Þess vegna getur venjulegt ljós orðið óþægilega bjart, hljóð yfirþyrmandi, lykt óþolandi og hreyfing aukið einkenni.

​

Mígrenikasti er gjarnan skipt í fjögur stig eða fasa. Ekki upplifa þó allir alla fasana og einkennin geta verið mismunandi milli einstaklinga og jafnvel milli kasta hjá sama einstaklingi. Þessir fasar eru fyrirboði, ára, höfuðverkjafasi og eftirköst. Mígrenikastið getur því haft áhrif á einstaklinginn fyrir, meðan á og eftir höfuðverkinn sjálfan.

 

 

​

Mígreni getur líka verið án höfuðverks

Mígreni þarf ekki alltaf að fela í sér mikinn höfuðverk. Sumir geta til dæmis fengið mígreni með áru þar sem höfuðverkur er lítill eða enginn. Hjá öðrum geta einkenni eins og svimi eða önnur taugakerfiseinkenni verið áberandi.

Þetta undirstrikar hvers vegna mígreni er ekki einfaldlega tegund höfuðverkjar heldur flókinn taugasjúkdómur.

Hvað veldur mígreni?

Ekki er hægt að benda á eina orsök mígrenis. Rannsóknir sýna þó að erfðir gegna mikilvægu hlutverki í tilhneigingu til mígrenis. Mígreni er flókinn sjúkdómur þar sem erfðafræðilegir, líffræðilegir og umhverfislegir þættir geta haft áhrif.

Ýmsar breytingar og aðstæður geta hjá sumum aukið líkur á mígreniskasti, til dæmis:

​

  • svefnskortur eða breytingar á svefnvenjum

  • hormónabreytingar

  • streita eða mikið álag

  • óreglulegar máltíðir

  • áfengi

  • sum matvæli

  • ákveðin skynáreiti, svo sem ljós, hljóð og lykt

  • mikið líkamlegt álag

  • breytingar á daglegri rútínu

​

Mikilvægt er þó að greina á milli orsakar sjúkdómsins og þátta sem geta stuðlað að því að kast hefjist.

​

Einstaklingur fær ekki mígreni vegna þess að hann svaf illa, var stressaður eða borðaði ákveðinn mat. Einstaklingurinn er með undirliggjandi tilhneigingu til mígrenis og ákveðnar aðstæður geta hjá sumum stuðlað að því að kast hefjist.

​

Tíðni mígrenis er mjög mismunandi. Sumir fá fáein köst á ári en aðrir glíma við mígreni mun oftar. Þegar höfuðverkur er til staðar 15 eða fleiri daga í mánuði í meira en þrjá mánuði, þar sem einkenni mígrenis eru til staðar að minnsta kosti átta daga í mánuði, getur verið um krónískt mígreni að ræða samkvæmt skilgreiningu ICHD-3.

pexels-vika-glitter-392079-9530180 Large.jpeg
pexels-vika-glitter-392079-9530180 Large_edited.jpg

Mígreni er algengt – en oft vangreint

Mígreni er einn algengasti taugasjúkdómur heims og hefur veruleg áhrif á heilsu og lífsgæði fólks um allan heim.

Alþjóðlegar rannsóknir benda til þess að um einn af hverjum sjö einstaklingum sé með mígreni. Sé slíkt algengi yfirfært á íslenskt þýði gæti því verið um tugi þúsunda einstaklinga að ræða hér á landi.

Margir ganga lengi með einkenni áður en þeir fá rétta greiningu og viðeigandi meðferð.

Það er hægt að meðhöndla mígreni

pexels-shkrabaanthony-5215019 Large.jpeg
pexels-karola-g-4491432 Large.jpeg

Þótt ekki sé til ein lækning sem læknar mígreni eru til fjölmargar meðferðir sem geta dregið úr tíðni og alvarleika kasta, minnkað einkenni og bætt lífsgæði fólks með mígreni.

​

Meðferð getur meðal annars falist í:

​

  • lyfjum sem tekin eru við mígreniskasti

  • fyrirbyggjandi lyfjameðferð

  • CGRP-miðaðri meðferð

  • Botox-meðferð við langvinnu mígreni

  • fræðslu og stuðningi

  • reglulegum svefni og máltíðum

  • að þekkja og eftir atvikum draga úr þáttum sem geta stuðlað að köstum

  • greiningu og meðferð annarra sjúkdóma eða þátta sem geta haft áhrif á mígreni

​

Meðferð þarf að taka mið af hverjum einstaklingi, einkennum hans, tíðni og alvarleika kasta, öðrum sjúkdómum og þeim áhrifum sem mígreni hefur á daglegt líf.

Markmið meðferðar er ekki aðeins að draga úr höfuðverk heldur einnig að minnka heildaráhrif sjúkdómsins og hjálpa einstaklingnum að taka meiri þátt í daglegu lífi, vinnu, námi, fjölskyldulífi og félagslífi.

Mígreni er ósýnilegur sjúkdómur

Mígreni sést yfirleitt ekki utan á fólki, þess vegna skiptir þekking og skilningur miklu máli.

Fólk með mígreni þarf skilning, stuðning og samfélag sem tekur sjúkdóminn alvarlega. Mígreni er ekki bara höfuðverkur sem hverfur ef viðkomandi drekkur meira vatn, tekur verkjatöflu eða „harkar af sér“.

​

Með réttri greiningu, viðeigandi meðferð, fræðslu og stuðningi er oft hægt að ná mun betri stjórn á sjúkdómnum.

​

Mígreni er raunverulegur taugasjúkdómur.

Mígreni er ekki bara höfuðverkur.

Sýnum skilning.

bottom of page