top of page

Fréttir

Þessa stundina...

pexels-karola-g-4468092 Large.jpeg

september-nóvember 2026

Greinaskrif

Stjórnarmeðlimir vinna hörðum höndum að greinaskrifum þessa dagana, sem og að semja fræðsluefni.

pexels-rebornfilmes-30008706 Large.jpeg

september-nóvember 2026

Uppsetning á fræðsluefni

Karen vinnur við uppsetningu á fræðsluefni og að setja upp heimasíðu og Thelma heldur samfélagsmiðlum gangandi

pexels-sora-shimazaki-5668495 Large 2.jpeg

september-nóvember 2026

Fundir og skipulag

Stjórnarmeðlimir sitja reglulega fundi og skipuleggja komandi vikur, deila með sér verkum og sækja um tilsett leyfi, styrki og annað slíkt.

Logo design featuring the blue text EMHA followed by European Migraine & Headache Alliance. It is a clean, professional branding graphic on a white background.

10. september 2026

Mígrenissamtökin eru aðilar að EMHA!

Þann 10. september var formlega gengið frá endurskráningu Mígrenissamtakanna í 

EMHA eru evrópsk regnhlífarsamtök sjúklingafélaga sem vinna að því að auka þekkingu og skilning almennings á mígreni og öðrum höfuðverkjasjúkdómum, draga úr fordómum og bæta aðgengi að greiningu og meðferð.

 

Aðildin tengir okkur við félög víða um Evrópu og gefur okkur tækifæri til að miðla reynslu, nýta fræðsluefni og vinna saman að sterkari rödd fólks með mígreni. Við hlökkum til samstarfsins!

Event photography showing people sitting in an auditorium watching a speaker on stage. The atmosphere is professional and educational.

Ný þekking á meðferð mígrenis var áberandi í dagskránni. Fjallað var um CGRP, efni sem tengist mígreni og er skotmark nokkurra nýrri fyrirbyggjandi meðferða. Einnig var rætt um PACAP sem mögulegt skotmark framtíðarmeðferða. Rannsóknir á þessu sviði gefa von um fleiri meðferðarkosti, en það er mikilvægt að greina á milli meðferða sem þegar eru í notkun og þeirra sem enn eru í rannsóknum.

Sérstök umfjöllun var um mígreni hjá konum á mismunandi æviskeiðum: tíðatengt mígreni, meðgöngu og brjóstagjöf, og breytingaskeiðið. Þetta minnir á að meðferð þarf að taka mið af aðstæðum hvers einstaklings og því hvernig einkenni geta breyst með tímanum.

​

Ráðstefnan beindi einnig sjónum að börnum og ungmennum, meðal annars nýrri meðferðum og svokölluðu svima- eða vestibular mígreni. Þá var rætt um þróun hlutverks hjúkrunarfræðinga í höfuðverkjaþjónustu og hvernig fræðsla og eftirfylgd geta stutt fólk sem lifir með sjúkdómnum.

​

Fyrir Mígrenissamtökin var sérstaklega ánægjulegt að sjá sjónarhorn sjúklinga og hagsmunagæslu fá rými í vísindadagskránni. Erindi um sjúklingamiðaðar rannsóknir, hagsmunagæslu og umönnun undirstrikaði mikilvægi þess að reynsla fólks með mígreni heyrist þegar rannsóknir og þjónusta eru þróaðar. Sérstök dagskrá fyrir sjúklinga var jafnframt hluti ráðstefnunnar.

Við tökum þekkinguna og tengslin frá Glasgow með okkur í áframhaldandi starf Mígrenissamtakanna. Markmiðið er að efla fræðslu, auka skilning á mígreni og stuðla að betra aðgengi að viðeigandi þjónustu á Íslandi.

3.-5. september 2026

​Mígrenisráðstefna í Dublin

Fulltrúi Mígrenissamtakanna sótti Migraine Trust International Symposium (MTIS 2026) í Glasgow dagana 3.–5. september. Þar komu saman rannsakendur, heilbrigðisstarfsfólk og fólk sem vinnur að hagsmunum einstaklinga með mígreni. Ráðstefnan fjallaði bæði um nýjustu rannsóknir og um hvernig bæta megi þjónustu við fólk með höfuðverkjasjúkdóma.

Studio photography of three professionals collaborating in a meeting at a wooden conference table. The atmosphere is formal yet collaborative within a law office setting.
Studio photography of a professional meeting around a table. A diverse group of three colleagues collaborates in a bright, modern office space.

26.ágúst 2026

Mígrenissamtökin funda með ÖBÍ

Þann 26. ágúst sl áttu fulltrúar Mígrenissamtakanna fund með Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ). Fundurinn var afar upplýsandi og gagnlegur og gaf okkur mikilvæga innsýn í starfsemi bandalagsins, möguleika á samstarfi og þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að verða fullgild aðildarsamtök.

Fundurinn undirstrikaði jafnframt mikilvægi þess að Mígrenissamtökin séu starfandi á Íslandi.

Mígreni er langvinnur taugasjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, starfsgetu, fjölskyldulíf og samfélagslega þátttöku. Þrátt fyrir þann fjölda fólks sem glímir við sjúkdóminn hefur lengi skort sérstakan málsvara sem gætir hagsmuna þessa hóps á Íslandi.

Markmið okkar er að efla fræðslu, auka skilning á sjúkdómnum, berjast fyrir bættri heilbrigðisþjónustu og tryggja að fólk með mígreni og aðra höfuðverkjasjúkdóma eigi sér öflugan málsvara.

Við stefnum að því að uppfylla skilyrði fyrir fullri aðild að ÖBÍ og teljum slíkt samstarf mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu samtakanna.

Því fleiri sem standa að baki samtökunum, þeim mun sterkari verður sameiginleg rödd okkar.

bottom of page