tegundir mígrenis
Þegar við heyrum talað um mígreni er yfirleitt verið að tala um mígreni með áru eða mígreni án áru, enda eru þær tegundir algengasta birtingamynd mígrenis.
Margir vita ekki að til eru mun fleiri sjaldgæfari tegundir sem lýsa sér á mjög mismunandi hátt.
MÍGRENI
MEÐ OG ÁN ÁRU

eru endurtekin köst sem geta varað frá 4 klukkustundum upp í 72 klukkustundir. Höfuðverkurinn getur verið miðlungs eða mikill og er oft öðrum megin í höfðinu. Önnur einkenni sem fylgja eru til dæmis ógleði og/eða uppköst, viðkvæmni fyrir hljóði, ljósi og lykt.
er svipað og án áru nema þá bætast við tímabundin einkenni sem koma á undan höfuðverknum, einskonar fyrirboði fyrir það sem koma skal. Þessi einkenni geta til dæmis verið sjóntruflanir (blikkandi ljós, svartir deplar, mynstur eða óskýrt sjónsvið), náladofi, erfiðleikar við að tala og/eða finna réttu orðin og tímabundnar truflanir á hreyfingu. Áran gengur oftast yfir innan klukkustundar. Að henni lokinni getur komið höfuðverkur ásamt öðrum dæmigerðum mígreniseinkennum.
Mígreni án áru
Mígreni með áru

Lotubundið mígreni
vs. krónískt mígreni
Mígreni getur verið mismunandi eftir því hversu oft köstin koma. Yfirleitt er talað um lotubundið mígreni eða krónískt mígreni.
Við lotubundið mígreni eru höfuðverkja dagar færri en 15 á mánuði. Tíðni kastanna getur þó verið mjög mismunandi milli einstaklinga. Sumir fá mígreniskast aðeins einu sinni á ári á meðan aðrir geta fengið mörg köst í mánuði.
Mígreni telst krónískt þegar einstaklingur er með höfuðverk 15 daga eða fleiri í mánuði, í meira en þrjá mánuði, þar sem mígreniseinkenni koma fram á minnst átta þessara daga.
Tíðni mígrenikasta getur breyst með tímanum. Þættir eins og streita, svefn, hormónabreytingar, lyf og ýmislegt annað geta haft áhrif á hversu oft köstin koma.

Hemiplegic mígreni er sjaldgæf tegund mígrenis þar sem tímabundið máttleysi eða lömun kemur fram öðrum megin í líkamanum. Einkennin geta komið fyrir höfuðverkinn eða á meðan á honum stendur. Einnig geta komið fram einkenni eins og svimi, dofi, náladofi og erfiðleikar með tal, kyngingu eða sjón. Einkennin geta verið mjög ógnvekjandi og geta líkst heilablóðfalli.
Þessi tegund getur í sumum tilfellum verið ættgeng og kallast þá ættgengt hemiplegic mígreni.
Í þessari tegund mígrenis koma fram einkenni sem tengjast starfsemi heilastofnsins. Einkennin geta meðal annars verið svimi, suð fyrir eyrum, óskýrt tal, skert heyrn, jafnvægisleysi, tvísýni og yfirlið. Höfuðverkurinn finnst oft aftan á höfðinu og getur komið skyndilega og báðum megin.
Sjónhimnu mígreni hefur fyrst og fremst áhrif á sjónina og getur valdið tímabundinni sjónskerðingu eða sjóntruflunum, oftast á öðru auganu. Höfuðverkur fylgir oftast þessum köstum.

Aðrar tegundir mígrenis
Mígreni með heilastofnsáru (migraine with brainstem aura)

Hemiplegic mígreni- mígreni með helftarlömun
Sjónhimnu mígreni (retinal migraine)
Sjónhimnu mígreni hefur fyrst og fremst áhrif á sjónina og getur valdið tímabundinni sjónskerðingu eða sjóntruflunum, oftast á öðru auganu. Höfuðverkur fylgir oftast þessum köstum.
Magamígreni (abdominal migraine)
Magamígreni kemur helst fram hjá börnum. Í stað þess að höfuðverkur sé helsta einkennið koma endurtekin köst af kviðverkjum, ógleði eða uppköstum. Köstin geta komið með reglulegu millibili eða verið sjaldgæfari.
Mörg börn sem fá magamígreni þróa síðar með sér hefðbundið mígreni með höfuðverk.
Hormónatengt mígreni tengist tíðahringnum og kemur oft fram í tengslum við blæðingar. Hjá sumum koma köstin einkum rétt fyrir eða í upphafi blæðingar og geta þá verið lengri eða erfiðari en önnur mígreniköst. Hormónatengt mígreni getur komið bæði með og án áru. Margar konur sem fá tíðatengt mígreni fá einnig mígrenisköst á öðrum tímum mánaðarins.
Í sjaldgæfum tilfellum getur mígreniskast varað í meira en 72 klukkustundir. Þetta ástand getur orðið t.d. vegna ofnotkunar verkjalyfja. Þegar kast er mjög slæmt eða varir of lengi getur þurft að leita til læknis og í verstu tilvikunum getur þurft innlögn á sjúkrahús.
Tíðatengt/Hormónatengt mígreni (menstrual migraine)
Langvinnt mígrenikast (Status migrainosus)

Í sjaldgæfum tilfellum getur mígreniskast varað í meira en 72 klukkustundir. Þetta ástand getur orðið t.d. vegna ofnotkunar verkjalyfja. Þegar kast er mjög slæmt eða varir of lengi getur þurft að leita til læknis og í verstu tilvikunum getur þurft innlögn á sjúkrahús.
Hormónatengt mígreni tengist tíðahringnum og kemur oft fram í tengslum við blæðingar. Hjá sumum koma köstin einkum rétt fyrir eða í upphafi blæðingar og geta þá verið lengri eða erfiðari en önnur mígreniköst. Hormónatengt mígreni getur komið bæði með og án áru. Margar konur sem fá tíðatengt mígreni fá einnig mígrenisköst á öðrum tímum mánaðarins.
Magamígreni kemur helst fram hjá börnum. Í stað þess að höfuðverkur sé helsta einkennið koma endurtekin köst af kviðverkjum, ógleði eða uppköstum. Köstin geta komið með reglulegu millibili eða verið sjaldgæfari.
Mörg börn sem fá magamígreni þróa síðar með sér hefðbundið mígreni með höfuðverk.

Hér eru svimi og jafnvægistruflanir áberandi einkenni. Svimi getur staðið í mínútur eða klukkustundir og getur komið með eða án dæmigerðs höfuðverkjar. Einnig getur verið aukin næmni fyrir hreyfingu, sjónáreiti eða hljóði.
Þá koma mígreniseinkenni, svo sem ára, sjóntruflanir, dofi, ógleði eða svimi, án þess að dæmigerður höfuðverkur fylgi.
Jafnvægis mígreni (vestibular migraine)
Mígreni án höfuðverks (silent migraine)
Mígreni getur því birst á ótal marga vegu og einkenni geta verið mjög mismunandi milli einstaklinga. Mígreni er því ekki BARA höfuðverkur.