top of page

Matur sem mígreniskveikja

Flest okkar með mígreni þekkjum að ýmislegt í daglegu lífi getur haft áhrif á mígrenið og ýtt af stað mígreniskasti.

 

Þetta geta verið margir ólíkir þættir, svo sem truflanir á svefni, hormónasveiflur, streita og aðrir sálrænir þættir, veðurbreytingar og síðast en ekki síst matur og aðrir fæðutengdir þættir.

​

Matur getur verið mígreniskveikja hjá sumum, en það er mjög einstaklingsbundið. Það sem veldur kasti hjá einum þarf ekki að hafa sömu áhrif hjá öðrum. Einnig eru margir sem finna engin tengsl við ákveðin matvæli.

Studio food photography showcasing a meticulously arranged charcuterie board with sliced cheeses, pickles, walnuts, and rosemary. The bright, clean overhead composition creates an inviting and artisanal atmosphere.
Studio photography of fresh oranges with green leaves, including halves in the foreground. The lighting is soft and bright, emphasizing the vibrant citrus colors.

Hvaða matvæli geta tengst mígreni?

Rannsóknir víða um heim benda til þess að allt að 64% fólks með mígreni tengi einkenni sín við ákveðin matvæli eða aðra fæðutengda þætti. Margir nefna fleiri en eitt matvæli. Hjá sumum getur eitt ákveðið matvæli verið nóg til að ýta af stað kasti, en hjá öðrum virðist samspil nokkurra þátta skipta meira máli eða ákveðnar fæðusamsetningar.

 

Í íslenskri rannsókn tengdu 76% þátttakenda mígrenieinkenni sín við ákveðin matvæli eða aðra fæðutengda þætti.

​

Fæðukveikjurnar sem oftast eru nefndar í erlendum rannsóknum eru:

  • Áfengi, sérstaklega rauðvín

  • Sítrusávextir (appelsínur, sítrónu, lime og fl.)

  • Mygluostar

  • Súkkulaði

  • Mjólkurvörur

  • Unnar kjötvörur og reykt kjöt

  • Gervisætuefni (t.d aspartame)

  • Nítrít og nítröt (finnst t.d í unnum kjötvörum, notað sem rotvarnarefni eða bragðefni í sumum matvælum)

  • Týramín (finnst t.d. í mygluostum, reyktum fisk og kjöti, gerjuðum mat, bjór og fl.)

  • Koffín 

  • Svengd eða fasta

​

Í íslensku rannsókninni voru algengustu fæðukveikjurnar rauðvín, hvítvín, lakkrís og reykt kjöt, auk svengdar og/eða föstu. Sem er mjög í takt við aðrar niðurstöður, þó er lakkrísinn algengari hér en annars staðar. 

​

Það er þó mikilvægt að hafa í huga að þessar upplýsingar þýða ekki að allir sem fá mígreni þurfi að forðast þessi matvæli. Fæðukveikjur eru mjög einstaklingsbundnar og flestir þurfa ekki að útiloka matvæli sem þeir þola vel.

Studio photography of assorted gourmet chocolate truffles and bonbons. The close-up view highlights the glossy textures and dark chocolate tones in an indulgent, confectionary setting.

Getur maturinn
sjálfur verið orsökin?

Tengsl matar og mígrenis eru ekki alltaf einföld. Þó að sumir upplifi skýr og endurtekin tengsl milli ákveðins matar og mígreniskasta er ekki alltaf ljóst hvort maturinn sjálfur hafi komið kastinu af stað.

​

Ein möguleg skýring er að löngun í ákveðin matvæli geti verið eitt af fyrstu einkennum mígreniskasts. Áður en höfuðverkurinn kemur fram geta orðið breytingar í heilanum sem hafa meðal annars áhrif á matarlyst og löngun í ákveðinn mat. Einstaklingur getur þá allt í einu fengið mikla löngun í ákveðið matvæli og borðað það. Þegar mígreniskastið kemur í kjölfarið getur verið auðvelt að álykta að maturinn hafi valdið kastinu, þó að löngunin í matinn hafi í raun verið einkenni af upphafi mígreniskastsins.

​

Á hinn bóginn hafa rannsóknir einnig sýnt að sumir geta haft gagn af því að forðast matvæli sem þeir vita af reynslu að tengjast mígrenisköstum hjá þeim. Hjá þessum einstaklingum getur það dregið úr tíðni kasta og jafnvel haft áhrif á lengd þeirra og styrk.

Þarf að forðast ákveðin matvæli?

Lifestyle photography showcasing a person writing in a spiral notebook with a white mug in hand. The scene evokes a cozy, productive, and peaceful morning atmosphere.

Ekki er ráðlagt að útiloka fjölda matvæla úr fæðinu nema skýr og endurtekin tengsl séu á milli þeirra og mígreniskasta. Of mikil takmörkun á mataræði getur gert það erfiðara að borða fjölbreytt og næringarríkt fæði og getur einnig haft neikvæð áhrif á lífsgæði. Stöðugar áhyggjur af því hvað megi og megi ekki borða geta aukið streitu og kvíða – sem sjálft getur verið kveikja að mígreni.

​

Ef þig grunar að matur hafi áhrif á mígrenið getur verið gagnlegt að halda einfalda mígrenisdagbók. Þar getur þú skráð hvað þú borðar, hvenær mígreniseinkenni koma fram og hvaða aðrir þættir gætu verið að spila inn í eins og svefnvenjur, streita, hormónabreytingar eða óreglulegar máltíðir.

Með því að fylgjast með þessu í einhvern tíma getur þú öðlast betri skilning á eigin mynstri og áttað þig á því hvort ákveðin matvæli eða matarvenjur tengjast mígrenisköstunum þínum.

Gott að hafa í huga

Það er enginn einn „mígrenismatur“  sem allir þurfa að forðast. Fæðukveikjur eru einstaklingsbundnar og það sem hefur áhrif á einn getur verið alveg vandræðalaust fyrir annan.

​

Markmiðið er því ekki að útiloka sem flest matvæli heldur að þekkja eigin kveikjur og finna jafnvægi. Þannig er hægt að draga úr mígrenisköstum án þess að mataræðið verði óþarflega takmarkandi eða valdi streitu. Almennt heilbrigt mataræði sem er í takt við almennar ráðleggingar um mataræði frá Embætti landlæknis er það mataræði sem kemur best út fyrir fólk með mígreni. (https://island.is/naering-radleggingar-landlaeknis) 

​

Matur á að vera hluti af góðu og fjölbreyttu lífi en ekki uppspretta stöðugra áhyggja.

 

Hægt er að lesa meira um algengar fæðukveikjur mígrenis á Íslandi í greininni minni í Læknablaðinu 12. tbl. 110. árg. 2024.  Einnig hægt að smella á linkinn: https://www.laeknabladid.is/tolublod/2024/12/faeda-sem-migrenikveikja

 

Hadda Margrét 

Klínískur Næringarfræðingur

Studio photography of fresh vegetables, fruits, and an open cookbook on a kitchen surface. The light, airy composition creates a wholesome and healthy atmosphere.
bottom of page